Heimilisofbeldi og félagsráðgjöf: Mikilvægi löggjafar
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Heimilisofbeldi er alvarlegt lýðheilsuvandamál í heiminum í dag og er ofbeldi gegn konum þýðingarmikil ógn við heilsu einstaklinga, ásamt því að vera alvarlegt mannréttindabrot. Afleiðingar heimilisofbeldis geta haft mikil áhrif á þá einstaklinga sem fyrir ofbeldinu verða sem og samfélagið í heild sinni. Istanbúl samningurinn, byggir á heildstæðri nálgun sem snýr að forvörnum gegn ofbeldi, aðgerðum stjórnvalda til að aðstoða þolendur og ítarlegri stefnu er varðar ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Austurríska leiðin leggur aftur á móti upp með að geranda heimilisofbeldis sé vísað burt af heimili og fær hann ekki að koma þangað aftur í tiltekinn tíma. \nMarkmið þessarar heimildarritgerðar er að kanna hvað heimilisofbeldi er, hvernig íslensk löggjöf um heimilisofbeldi fellur að Istanbúl samningnum og lagarramma austurrísku leiðarinnar. Einnig er skoðað hvort mikilvægt sé fyrir félagsráðgjafa að nýta sér löggjöf í málum sem snúa að heimilisofbeldi. \nHelstu niðurstöður eru að heimilisofbeldi er í grundvallaratriðum valdbeiting af hendi núverandi eða fyrrverandi maka. Það getur birst með líkamlegu, andlegu, fjárhagslegu og/eða kynferðislegu ofbeldi. Einnig kom í ljós að ákvæði íslenskrar löggjafar fellur vel að Istanbúl samningnum og lagaramma austurrísku leiðarinnar. Á síðustu árum hefur löggjöf sem snýr að heimilisofbeldi batnað til muna og þjónusta fyrir þolendur og gerendur er orðin betri. Mikilvægt er fyrir félagsráðgjafa að nýta sér löggjöf í vinnu sinni með notendum. Með lagalegum skilgreiningum, reglum og reglugerðum er félagsráðgjöfum oft veitt heimild til að grípa inn í og veita viðeigandi aðstoð í heimilisofbeldismálum. Félagsráðgjafar geta nýtt sér löggjöf til að taka upplýstar ákvarðanir í vinnu sinni og er hún því afar mikilvæg í starfi félagsráðgjafa.
Source: Skemman
Author: Gyða Björk Ólafsdóttir 1993
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Health
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: domestic violence, intimate partner violence, social support, social services, Istanbul Convention, Icelandic legislation, gender-based violence, legal protection of victims, human rights, violence against women, Eastern Europe, comparative law, women's rights, gender-based violence prevention
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010163206
