Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að skoða stöðu kvenkyns þolenda heimilisofbeldis sem leitað hafa í Kvennaathvarfið, ílengst þar og átt erfitt með að öðlast sjálfstæði í kjölfarið. Markmiðsúrtak var notað og voru þátttakendur konur sem dvöldu í Kvennaathvarfinu lengur en 28 daga á tímabilinu janúar 2009 til og með desember 2013. Bæði var notast við megindlegar og eigindlegar aðferðir. Gögn voru fengin frá Kvennaathvarfinu en um komuskýrslur er að ræða þar sem fram koma upplýsingar um dvalarkonur á borð við uppruna, tengsl við geranda, lengd dvalar og hvert kona fer að dvöl lokinni. Einnig voru tekin sjö viðtöl, fimm viðtöl við fyrrverandi dvalarkonur og tvö viðtöl við fagaðila, starfskonu Kvennaathvarfsins annars vegar og félagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg hinsvegar. \n\tNiðurstöður sýna að þó nokkur fjöldi kvenna dvelur í lengri tíma í Kvennaathvarfinu á ári hverju. Á tímabilinu jókst bæði fjöldi þeirra kvenna sem dvaldi í lengri tíma og dvalardagar urðu fleiri. Konur af erlendum uppruna voru í meirihluta þeirra kvenna sem dvöldu í lengri tíma og í flestum tilvikum voru konur giftar geranda. Algengast var að konur færu í nýja leiguíbúð að dvöl lokinni en að meðaltali fór um 15% kvenna sem dvaldi í lengri tíma á ári hverju aftur heim til geranda. Peningaleysi og skortur á húsnæði eru helstu hindranir þess að konur öðlist sjálfstæði. Allir viðmælendur upplifðu mikla erfiðleika við að standa á eigin fótum og flestar höfðu gert margar tilraunir til að enda samband sitt, ein þeirra býr enn með geranda. Reynsla viðmælenda af Kvennaathvarfinu var á heildina litið mjög jákvæð en allar voru þær sammála um að eitt og sér dugi það ekki til enda sé það neyðarathvarf og dvöl þar takmörkuð. Niðurstöður sýna fram á skort á úrræðum fyrir þennan hóp kvenna og nauðsyn þess að þróa frekari úrræði. Þannig megi auðvelda konum að standa á eigin fótum og draga úr líkum á að konur gefist upp og fari aftur heim.
Source: Skemman
Author: Thelma Björk Guðmundsdóttir 1987
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Health
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010260466
