Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Ýmsar staðalímyndir um kyn, kynþátt, kynhneigð og fötlun birtist börnum í samfélaginu og geta haft áhrif á þeirra viðhorf. Margbreytileiki mannkynsins er mikill og er því mikilvægt að hann sé sýnilegur fyrir börnum. Hægt er að efla jafnréttismenntun barna með því að opna \numræðuna, fjalla um fjölbreytileikann og bjóða upp á bækur og efnivið þar sem fjölbreytileikinn er hafður að leiðarljósi. \nHringekja margbreytileikans er sett upp sem kennsluáætlun, hún inniheldur fjögur verkefni og er ætluð til þess að nýta í hópastarfi elstu deilda leikskóla í jafnréttisfræðslu. Verkefni hringekjunnar koma inn á ýmsa flokka jafnréttis, svo sem; kyn/kyngervi, fjölbreytileika fjölskyldna, kynþætti og fatlanir. Markmið verkefnisins er að fræða börn um fjölbreytileikann og kenna börnum að þau megi vera eins og þau vilja vera. Samkvæmt athugunum á verkefnunum sem eru settar í samhengi við fyrri rannsóknir er ljóst að jafnréttisfræðsla er mikilvæg fyrir leikskólabörn til þess að kynna þeim fyrir fjölbreytileikanum og draga úr fordómum. Mikilvægt er að efla þekkingu barna á fjölbreytileika mannkynsins til þess að gefa börnum tækifæri á að vera þau sjálf og fá að þroskast á eigin forsendum.
Source: Skemman
Authors: Vala Berglind Valsdóttir, Svandís Rós Ríkharðsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010277782
