Ignimbrítmyndanir frá Húsafellseldstöðinni. Hegðun flóðs og lega misgengja
Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Í efstu 1000 metrum í jarðlagastafla Húsafellseldstöðvarinnar hafa fundist þrjár ignimbrítmyndanir. Neðsta myndunin, Hraunfossaignimbrítið er tekið fyrir í þessu verkefni. Tvær opnur voru rannsakaðar, annars vegar við Hvítá á móts við Hraunfossa og hins vegar við Ásgil, litlu vestar. Með því að greina útlit, lögun, magn og uppruna korna eru einstök lög tengd milli opnanna. Minnsta fjarlægð á milli opnanna er um 300 metrar og hæðarmunur 10 metrar. Eitt og sama ignimbrítlagið er til staðar í báðum opnunum en er ill- rekjanlegt vegna eyðu sem liggur á milli þeirra. Gjóskufall sem sést við Ásgilsopnu er ekki sjáanlegt við Hraunfossaopnu. Auk greinilegra veikleika á yfirborði styðja hæðarmunur og takmörkuð útbreiðsla laga hugmyndir um misgengi á svæðinu. Misgengi þessi liggja annars vegar samsíða Ásgili, í norður-suður stefnu, og hins vegar samsíða farvegi Hvítár, í austur-vestur stefnu, þ.e.a.s. bæði þvert á og samsíða jarðlögum. Lóðréttar og láréttar breytingar í lögunum endurspegla hegðun gjóskuflóðsins. Með því að taka tillit til jarðlagahalla má fá nokkuð samfellt snið í gegnum opnuna við Hraunfossa. Neðri lagmót við bólstraberg í Hraunfossaopnu renna stoðum undir þá hugmynd að gjóskufall sem sést í Ásgili hafi sest til ofan þykka ignimbrítsins. Í flestum tilfellum sýna vikurkornin öfuga lóðgreiningu en vikur flýtur gjarnan upp í minni skerspennu á meðan bergbrot sökkva vegna mikils eðlismassa.
Source: Skemman
Author: Unnur Þorsteinsdóttir 1992
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Earth-Surface Processes
Field: Earth and Planetary Sciences
Domain: Physical Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010280427
