Work

Hreyfing og fæðingarþunglyndi. Gildi hreyfingar sem hluti af meðferð

Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Fæðingarþunglyndi þjakar um það bil 10–15 % kvenna en fæðingarþunglyndi er skilgreint sem geðlægðarlota eða langvinn geðlægð á fyrstu mánuðunum eftir barnsburð. Orsakir þess eru óþekktar en líklega er um að ræða samaspil margar þátta. Þeir þættir sem áhrif hafa geta verið af sálrænum toga og/eða átt uppruna sinn að rekja til líffræðilegra eða félagsfræðilegra þátta auk þess sem menningalegir þættir geta haft áhrif. Fæðingarþunglyndi getur haft slæmar afleiðingar í för með sér, ekki eingöngu fyrir móðurina heldur einnig ungabarnið og fjölskylduna í heild og er því mikilvægt að grípa sem fyrst inn í með viðeigandi meðferð. \nMarkmið þessarar kerfisbundnu samantektar er að varpa ljósi á gagnsemi hreyfingar sem hluta af meðferð við fæðingarþunglyndi. Hreyfing hefur almennt reynst áhrifarík við þunglyndi og því við hæfi að kanna áhrif hennar á þunglyndi í kjölfar barnsburðar. \nMarkviss leit af hágæða rannsóknum fór fram frá september 2013 til mars 2014. Við heimildaleitina voru notaðir gagnabankar á borð við Leitir.is, PEDro og PubMed. Að lokum fundust tíu rannsóknir sem uppfylltu öll skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni. Níu af þessum tíu rannsóknum sýndu fram á jákvæð áhrif hreyfingar á fæðingarþunglyndi eða einkenni þess en engu að síður ber að túlka niðurstöðurnar af varkárni vegna takmarkana í rannsóknunum. Til viðbótar við kerfisbundnu samantektina voru tekin viðtöl við heilbrigðisstarfsmenn, einn geðlækni og einn sérfræðing í hjúkrun, hjá Miðstöð foreldra og barna sem sinna konum með fæðingarþunglyndi til að kanna hvort þar sé hreyfing ráðlögð samhliða hefðbundinni meðferð. \nÞrátt fyrir takmarkaðan fjölda rannsókna á þessu sviði og annmarka þeirra gefa niðurstöðurnar vísbendingar og grunn fyrir framtíðarrannsóknir að byggja á.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010287269
Cites: 59
Cited by:
Related to: 10