Work

„Hin ósýnilegu börn“ : Áhrif þess að alast upp við vímuefnaröskun foreldra í barnæsku og á fullorðinsárum

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi varpar ljósi á aðstæður barna og uppkominna barna sem búa við vímuefnaröskun foreldra. Vímuefnaröskun er fjölskyldusjúkdómur sem hefur áhrif á alla fjölskyldumeðlimi, en sérstaklega börn. Fjölmargar rannsóknir benda til þess að börn sem alast upp á heimilum þar sem vímuefnaröskun foreldra er viðvarandi séu útsett fyrir margvígslegum skaðlegum áhrifum. Markmið ritgerðarinnar er að kanna áhrif þess að alast upp við vímuefnaröskun foreldra í barnæsku og á fullorðinsárum og hvort þörf sé á frekari íhlutun hér á landi til þess að styðja við þau börn sem verða fyrir áhrifum. Ritgerðin er fræðileg samantekt þar sem unnið var með fyrirliggjandi gögn til þess að ná tilsettum markmiðum. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að vímuefnaröskun foreldra geti borið með sér afar víðtæk og langvarandi áhrif á börn. Þá eru börn sem alast upp við slíkar aðstæður í aukinni hættu á skaðlegum sálfélagslegum áhrifum sem geta varað frá barnæsku fram á fullorðinsár. Jafnframt eru þau líklegri til að verða fyrir misbresti í uppvexti og í afgerandi meiri hættu á að þróa með sér vímuefnaröskun á fullorðinsárum. Börn sem alast upp við slíkar aðstæður eru viðamikill hópur en virðast engu að síður verulega falin í samfélaginu og fagaðilum reynist oft erfitt að bera kennsl á þau. Hér á landi er framboð á sérhæfðum úrræðum takmarkað þar sem ekki næst að mæta þjónustuþörf allra barna og uppkominna barna sem verða fyrir áhrifum af vímuefnaröskun foreldra. Þörf er á frekari íhlutun hér á landi fyrir börn sem alast upp við slíkar aðstæður til þess að draga úr skaðlegum áhrifum og fyrirbyggja að þau fylgi frá barnæsku til fullorðinsára.\t \n \nLykilhugtök: Vímuefnaröskun (e. substance use disorder), foreldrar (e. parents), börn (e. children), áhrif (e. effects), íhlutun (e. intervention).
Source: Skemman
Authors: Agnes Rut Ásgeirsdóttir, Agnes Tinna Magnúsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010329472
Cites: 55
Cited by:
Related to: 10