Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Vinsældir hlaðvarpa hafa aukist hratt og samhliða vaxandi vinsældum hefur miðillinn í auknum mæli verið nýttur í markaðsstarfi. Grundvöllur að góðum árangri í markaðsstarfi byggist á að skilja hvað hefur áhrif á hvatir, langanir og hegðun markhóps. Persónuleiki er talinn haldast stöðugur og hafa áhrif á hugsanir, tilfinningar og hegðun fólks og er því oft nýttur til að skilgreina markhópa. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort tengsl væru á milli annars vegar persónuleikaþátta, kyns, aldurs, tekna, menntunarstigs og hins vegar hlustunar á mismunandi flokka hlaðvarpa. Notast var við HEXACO persónuleikaprófið sem samanstendur af sex persónuleikaþáttum: heiðarleika-auðmýkt, tilfinningasemi, úthverfu, samvinnuþýði, samviskusemi og víðsýni, ásamt því að settir voru fram 15 mismunandi efnisflokkar hlaðvarpa. Spurningalista var dreift á samfélagsmiðlum og alls bárust 412 svör. Kynjahlutfallið var frekar ójafnt þar sem 73% þátttakenda voru konur en dreifing aldurs, tekna og menntunarstigs var nokkuð góð. Niðurstöður sýndu að persónuleikaþættir hafa meiri skýringarmátt en lýðfræðilegir þættir. Hægt var að tengja víðsýni við hlustun á sjö flokka, tilfinningasemi og úthverfu við tvo flokka hvort, og heiðarleika-auðmýkt og samvinnuþýði við einn flokk hvort. Ekki fundust tengsl milli samviskusemi og hlustunar á neinn flokk hlaðvarpa. Kyn, aldur og tekjur útskýrðu breytileika í sumum flokkum en engin tengsl fundust við menntunarstig. Skýringarhlutfallið var allt frá 35,6% fyrir grínþætti og niður í 4,4% fyrir hlaðvörp um samfélag og menningu og því ljóst að enn er margt á huldu um nákvæmlega hvað skýrir val á tilteknum tegundum hlaðvarpa. Fylgni hlustunar er sterkust milli efnisflokka sem tengjast sem gefur til kynna að efnistök skipti máli en einnig er veik til miðlungsfylgni á milli margra flokka sem gæti þýtt að hlustun dreifist á marga flokka. \nÞessi rannsókn er mikilvægt framlag til fræðanna um hlaðvörp, en skortur er á rannsóknum um hvernig þau nýtast við markaðsfærslu og hvernig sálfræðibreytur á borð við persónuleika tengjast hlustun á hlaðvörp. Að auki nýtist rannsóknin öllum þeim sem stunda markaðsfærslu í tengslum við hlaðvörp. Þar sem persónuleikaþættir hafa meiri skýringarmátt en lýðfræðilegir þegar kemur að hlustun á hlaðvörp er vert að taka það til greina við greiningu og val á markhópi.
Source: Skemman
Author: Ingibjörg Lilja Diðriksdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010368642
