Work

Hönnunarhugsun við þróun Spjallmenna

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Á tímum háþróaðrar tækni og gervigreindar hafa spjallmenni orðið sífellt algengari á ýmsum sviðum. Spjallmenni þjóna í grunninn sem sýndaraðstoðarmenn fyrir samskipti manna og tölvu. Þetta rannsóknarverkefni miðar að því að kanna getu hönnunarhugsunar við að takast á við áskoranir og tækifæri í þróun og hönnun spjallmenna. Hvernig hönnunarhugsun getur upplýst og leiðbeint á hinum ýmsu stigum spjallmennaþróunar og leitt af sér, í framhaldinu jákvæða notendaupplifun. Rannsóknarspurningin sem stýrir þessari rannsókn er: Hvernig samþætting hönnunarhugsunar getur bætt þróun og hönnun spjallmenna til að auka notendaupplifun. Til að svara þessari spurningu er kafað í aðferðafræði, verkfæri og hugarfar hönnunarhugsunar ásamt virkni og þróunarferli spjallmenna og skoðað áhrif þeirra á heildarupplifun notenda. Með því að greina uppruna og aðferðafræði spjallmenna og hönnunarhugsunar, miðar rannsóknin að því að veita innsýn í þær leiðir sem hönnunarhugsun getur aukið virkni og skapað notendavænni viðmót spjallmenna. \nNiðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess samþætting hönnunarhugsunar við þróun spjallmenna leiðir til jákvæðri heildarupplifun notenda. Hönnunarhugsun felur í sér að skilja hvaða vandamál og þarfir notendur hafa. Með því að hugsa um þarfir notenda geta hönnuðir búið til spjallþræði sem eru auðveldir í notkun og hjálplegir. Að vita nákvæmlega hvað notendur þurfa og einnig skilja vandamál þeirra er mikilvægt fyrir hönnuði spjallmenna. Þessi þekking stýrir ekki aðeins hönnunarferlinu heldur tryggir einnig að lausnirnar sem við búum til leysi raunveruleg vandamál. Að búa til einföld viðmót og notast við gagnvirka hönnun gerir spjallmenni sveigjanlegri og móttækilegri, sem skilar sér jákvæðari upplifun notenda. Endurgjöf frá notendum hjálpar fyrirtækjum að safna raunverulegum upplýsingum til að halda áfram að bæta og þróa spjallmenni. Þessar stöðugu umbætur byggðar á þörfum notenda geta leitt til aukningu í þáttöku og ánægju þeirra. Rannsókn þessi fer yfir, hvernig hönnunarhugsun getur gert spjallmenni notendavænni, áhrifaríkari og í takt við það sem notendur vilja raunverulega.
Source: Skemman
Author: Marteinn Einarsson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010378880
Cites: 24
Cited by:
Related to: 10