Hreyfum okkur saman : greinargerð með rafbók
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Rafbókin „Hreyfum okkur saman” er fræðsluefni fyrir börn sem er hugsuð til að hvetja þau til hreyfingar í kennslustundum. Áhugi okkar er á sviði hreyfingar og heilsu. Við teljum að með aukinni hreyfingu og að setja heilsu okkar í fyrsta sæti hafi skilað okkur góðum árangri í námi, starfi og fjölskyldulífi síðustu ár. Rafbókin er fræðsluefni fyrir börn um hreyfingu og ávinning hennar. Efnið er á formi rafbókar og eru þar hugmyndir að æfingum sem sýndar eru með líflegum myndum ásamt hnitmiðuðum útskýringum. Við styðjumst við rannsóknarspurninguna: Hvernig getur hreyfing stuðlað að bættum námsárangi hjá börnum með sérþarfir? \nRafbókinni fylgir greinargerð þar sem farið er yfir aðalnámskrá grunnskólanna, ráðleggingar lýðheilsustöðvar og einnig er rýnt í þau áhrif sem hreyfing hefur á heilastarfsemi. Greint verður frá framkvæmd verkefnisins í lok greinagerðarinnar en einnig förum við yfir okkar hugleiðingar og persónulega upplifun á framkvæmdinni. Við er einnig fjallað um mikilvægi hreyfingar fyrir alla aldurshópa. Við vinnu á verkefninu þá komumst við fljótlega að því að hugmyndir okkar endurspeglast af ráðleggingum frá landlækni.
Source: Skemman
Authors: Ellen Björg Jónsdóttir, Sandra Einarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010468029
