Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur. Breytt viðhorf í samfélaginu, aukinn þrýstingur yfirvalda um að einstaklingar búi sjálfstæðri búsetu eins lengi og kostur er og mikil fjölgun þeirra sem óska eftir þjónustu heimahjúkrunar, gefur tilefni til þess að skoða kosti þess að nota mælitæki sem metur heilsufar, færni og þjónustuþörf þjónustuþega. Með innleiðingu á interRAI- matstæki (Resident Assessment Instrument) í heilbrigðisþjónustu hefur þessi möguleiki orðið að veruleika. \nTilgangur: Að skoða heilsufar, færni og þjónustuþörf einstaklinga sem njóta þjónustu heimahjúkrunar á Akranesi og á Sauðárkróki samkvæmt upplýsingum úr interRAI‒HC upphafsmati og MAPLe reikniritinu sem raðar einstaklingum í þjónustuflokka eftir upplýsingum úr matinu. \nAðferð: Rannsóknin er megindleg afturvirk lýsandi samanburðarrannsókn. Úrtakið var 60 skjólstæðingar á Akranesi og 42 skjólstæðingar á Sauðárkróki \nNiðurstöður: Meðalaldur skjólstæðinga á Akranesi var 79,4 ár en 83,4 ár á Sauðárkróki. Aldursflokkurinn 81‒90 ára var fjölmennastur, 43,3% á Akranesi og á Sauðárkróki 48,8%. Fleiri skjólstæðingar heimahjúkrunar á Akranesi fundu til einmanaleika, höfðu dregið úr þátttöku í félagsstarfi og höfðu orðið fyrir áföllum síðustu 90 daga en skjólstæðingar á Sauðárkróki. Einvera yfir daginn og skerðing á skammtímaminni hjá skjólstæðingum var sambærileg á Akranesi og á Sauðárkróki. Um helmingur skjólstæðinga á báðum stöðum var með mæði eða öndunarerfiðleika \nog meirihluti skjólstæðinga á báðum stöðum fann til þreytu eða í um 90% tilvika. Um þriðjungur skjólstæðinga á báðum stöðum höfðu hlotið byltur síðustu 90 daga. Fleiri skjólstæðingar heimahjúkrunar á Sauðárkróki þurftu aðstoð við lyfjatöku en á Akranesi. Ekki var marktækur munur á MAPLe flokkum og þjónustuþörf á Akranesi og á Sauðárkróki. Skjólstæðingar í MAPLe flokkum 4 og 5 fengu á báðum stöðum sömu þjónustu og skjólstæðingar í MAPLe flokk 3. \nÁlyktanir: Niðurstöður gefa til kynna að interRAI‒HC upphafsmatið og MAPLe flokkarnir gefi góða mynd af stöðu skjólstæðinga og hver þeirra þjónustuþörf sé. Heimahjúkrun þarf að eflast til að hægt sé að veita þjónustu við hæfi og stoðþjónusta, s.s. dagþjónusta, hvíldarinnlagnir, félagsstarf, endurhæfing og félagsþjónusta þarf að vera öflug.
Source: Skemman
Author: Hallveig Skúladóttir 1961
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Geriatrics and Gerontology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010468781
