Work

Hvað einkennir þá sem ná árangri í hugrænni atferlismeðferð? Ósérhæfð hópmeðferð fyrir skjólstæðinga heilsugæslunnar

Year: 2009
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða tengsl einstaklingsþátta við \nmeðferðarárangur í ósérhæfðri hugrænni atferlismeðferð meðal gesta \nheilsugæslustöðva. Þátttakendur voru 441 talsins en þeim var vísað í meðferðina af \nheimilislækni. Meðferðin var veitt í 15-25 manna hópum af tveimur sálfræðingum \nLandspítalans og stóð í fimm vikur. Hver tími var vikulega, tvo tíma í senn. \nNiðurstöður sýna að meðferðin ber árangur fyrir breiðan hóp fólks. Alvarlegri \neinkenni í upphafi meðferðar voru yfirleitt tengd betri árangri í meðferð ásamt því \nað fjöldi greininga og persónuleikaröskun sýndu ekki tengsl við meðferðarárangur. \nÞessar niðurstöður eru í andstöðu við fyrri rannsóknir. Rannsóknin sýndi einnig að \ntengsl lýðfræðilegra breyta við meðferðarárangur voru ekki til staðar en fyrri \nrannsóknir hafa verið misvísandi í þessum efnum. Frekari rannsókna er því þörf til \nað skýra betur tengsl einstaklingsþátta við árangur í ósérhæfðri hugrænni \natferlismeðferð meðal gesta heilsugæslustöðva.
Source: Skemman
Author: Aðalbjörg Heiður Björgvinsdóttir 1982
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010596284
Cites: 88
Cited by: 1
Related to: 10