Iðjuvellir : þátttökuþjónusta
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Verkefni þetta er heimildasamantekt með nýsköpun. Tilgangur þess var að taka saman fræðilegar heimildir og greina hvaða þættir í samspili einstaklings, iðju og umhverfis ýta undir sjálfstæða búsetu eldra fólks og nýta svo niðurstöðurnar til hönnunar á nýrri þjónustu. Rannsóknarspurningarnar sem leiddu verkefnið voru: 1) Hvaða þættir styðja við sjálfstæða búsetu eldra fólks? 2) Hvað geta iðjuþjálfar lagt af mörkum til að fólk geti búið sem lengst heima? 3) Hvaða þjónusta stendur til boða í Sveitarfélaginu Árborg sem að styður eldra fólk til sjálfstæðrar búsetu? 4) Hvers konar úrræði gæti stutt eldra fólk enn betur til að búa lengur heima í Sveitarfélaginu Árborg? Leitast var við að svara fyrstu þremur rannsóknar- spurningunum með fræðilegri heimildasamantekt en þeirri fjórðu með nýsköpun. Niðurstöður heimildasamantektar leiddu í ljós að meirihluti eldra fólks vill búa heima er ýmis þjónusta sem styður við sjálfstæða búsetu, t.d. félagsleg heimaþjónusta, heimahjúkrun og heilsueflandi heimsóknir. Margt bendir til ávinnings af starfi iðjuþjálfa með eldra fólki, t.d. í heilsueflingu og forvörnum, aðlögun á umhverfi og þjálfun við flóknari athafnir daglegs líf. Í Árborg er félagsleg heimaþjónusta, heimahjúkrun, heilsueflandi heimsóknir og félagsstarf eldri borgara. Fá úrræði eru þó í boði sem taka á félagslegum þörfum eldra fólks, bæði í Sveitarfélaginu Árborg og víðar en einmanaleiki er stórt vandamál meðal eldra fólks og oft ástæða þess að það sækir um aukna þjónustu. Nýsköpunin felst því í þátttökuþjónustu sem miðar að því að efla félagslega þátttöku 60 ára og eldri í Sveitarfélaginu Árborg. Hún gengur út á að notendur þjónustunnar eru bæði veitendur og þiggjendur með því að aðstoða og styðja við hvert annað í athöfnum daglegs lífs og félagslífi. Með innleiðingu þjónustunnar er skapaður vettvangur þar sem notendur styðja hvern annan á jafningjagrundvelli, mynda félagsleg tengsl sín á milli og minnka þannig líkurnar á einmanaleika. \nLykilhugtök: Iðjuþjálfun, eldra fólk, einmanaleiki, þátttaka, þátttökuþjónusta, heimili og sjálfstæð búseta.
Source: Skemman
Authors: Guðbjörg Pálsdóttir 1991, Guðrún Edda Hannibalsdóttir 1983, Nanna Margrét Guðmundsdóttir 1990
Language: Icelandic
Subfield: Life-span and Life-course Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010720131
