Work

Kostnaðarvirknigreining á innleiðingu verkefnisins Hugur og heilsa í íslenskt skóla- og heilbrigðiskerfi

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Meiriháttar geðlægð (e. major depressive disorder) er að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar talin helsta ástæða fötlunar í heiminum og er hún í 3. sæti yfir þá sjúkdóma sem valda mestri efnahagslegri byrði í heiminum. Því er spáð að hún verði kostnaðarsamasti sjúkdómur tekjuhárra ríkja árið 2030. Algengi meiriháttar geðlægðar á lífsleiðinni er 20-25% meðal ungmenna en aðeins 17% meðal fullorðinna. Forvarnarnámskeiðið Hugur og heilsa hefur sýnt sig geta dregið úr líkum þess að ungmenni fái fyrstu lotu alvarlegrar geðlægðar á Íslandi. Rannsóknin hefur verið endurtekin í Portúgal með hliðstæðum árangri og náðist hér á landi. Verið er að rannsaka árangur verkefnisins í Svíþjóð og fyrstu niðurstöður falla í sama farveg og hið sama gildir um rannsókn á árangri þess í Grikklandi. \nAðferðir og efniviður: Hagkvæmni innleiðingar námskeiðsins Hugur og heilsa í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu er könnuð með kostnaðarvirknigreiningu út frá þjóðhagslegu sjónarhorni. Kostnaður við innleiðingu og rekstur verkefnisins er borinn saman við það sem sparast í samfélaginu þegar þunglyndi dregst saman. Við mat á því sem sparast er stuðst við niðurstöður úr erlendum rannsóknum sem og íslenskar kostnaðarupplýsingar. Við mat á ávinningi er stuðst við niðurstöður á virkni verkefnisins hér á landi. Niðurstöður eru settar fram á verðlagi ársins 2024 og miðað er við 3% afvöxtunarstuðul. Reiknað er stigvaxandi kostnaðarvirknihlutfall sem lýsir kostnaði á hvert áunnið lífsgæðavegið lífár. Næmisgreiningar eru framkvæmdar með tilliti til helstu þátta greiningarinnar. \nNiðurstöður: Heildarkostnaður við innleiðingu og rekstur verkefnisins á höfuðborgarsvæðinu reiknast 80.230.000 ISK. Heildarkostnaður sem sparast í þjóðfélaginu reiknast 23.739.979 ISK. Heildarkostnaður að frádregnum sparnaði reiknast því 56.490.021 ISK. Forvörn gegn þunglyndi hjá 14-15 ára ungmennum skilar 17 áunnum lífsgæðavegnum lífárum. Stigvaxandi kostnaðarvirknihlutfall reiknast því 3.349.415 ISK. \nÁlyktun: Miðað við kostnaðarvirkniþröskuld Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar reiknast innleiðing og rekstur námskeiðsins Hugur og heilsa í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu mjög hagkvæm.
Source: Skemman
Author: Þórdís Huld Atladóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7010820922
Cites: 35
Cited by:
Related to: 10