Work

Könnunarsamantekt á innri HIV tengdri stimplun: birtingarmyndir, mælitæki og meðferðir

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Miklar framfarir hafa átt sér stað í meðhöndlun HIV (e. human immunodeficiency virus) sýkingar þökk sé framförum á sviði læknavísinda. Allt frá upphafi faraldursins hefur stimplun (e. stigma) fylgt HIV greiningu og eru fræðimenn sammála um að vinna þurfi gegn henni til tryggja samfellu í þjónustu og stöðva útbreiðslu HIV. Það hefur verið lagt til að HIV tengd stimplun geti birst sem persónubundin stimplun, áhyggjur af opinberun, neikvæð sjálfsmynd og/eða áhyggjur af viðhorfum almennings. Ósamræmis hefur þó gætt í skilgreiningum hugtaka og atriðum mælitækja, og skortur verið á gagnreyndum meðferðum til að draga úr stimplun. Þjónusta hjúkrunarfræðinga við HIV jákvæða er umtalsverð og á sér langa sögu, en skýra þarf hlutverk þeirra betur. \nTilgangur: Markmið þessarar könnunarsamantektar (e. scoping review) er að skoða birtingarmyndir stimplunar meðal HIV jákvæðra út frá þeim mælitækjum sem hafa verið notuð í meðferðarrannsóknum. Einnig er markmið að gera samantekt á meðferðum sem miða að því að draga úr stimplun meðal HIV jákvæðra og eiga erindi við hjúkrun. \nAðferðafræði: Könnunarsamantektin var unnin eftir leiðbeiningum frá Joanna Briggs Institute. Leit var gerð í rafrænum gagnagrunnum PubMed, Cinahl og Medline að rannsóknum sem birtar voru 2013-2023 og fjölluðu um meðferðir til að draga úr stimplun meðal HIV jákvæðra. Leit var einnig gerð með skoðun heimildarlista og tilvísana. Gerð var krafa um að í rannsóknum væri stimplun mæld fyrir og eftir meðferð. Gagnavinnsla og samþætting niðurstaða var framkvæmd með töflugerð (e. matrix). \nNiðurstöður: Nítján rannsóknir með tæplega fimm þúsund þátttakendum uppfylltu skilyrði: tólf slembirannsóknir, fimm með fyrirprófun-eftirprófun tilraunasniði og tvær forrannsóknir. Rannsóknirnar notuðust við sjö mismunandi mælitæki en algengust var notkun á HIV stigma scale (HSS). Lykilhugtök voru skilgreind með sambærilegum hætti milli mælitækja en niðurstöður þáttagreiningar voru ólíkar. Atriði sem endurspegluðu neikvæða sjálfsmynd voru hluti af öllum mælitækjum en persónubundin stimplun hluti af þremur. Rannsóknir notuðust við hópmeðferðir (n=8), einstaklingsmeðferðir (n=7) og blöndu af einstaklings- og hópmeðferðum (n=4). Þau viðfangsefni sem oftast voru tekin fyrir í meðferðum voru stimplun (n=14), sjálfsmynd og sjálfsefling (n=13), félagsleg samskipti (n=13) og opinberun (n=11). \nÁlyktanir: Veruleg þekking er til staðar um birtingarmyndir stimplunar sem hagnýta má í klínísku starfi hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingar sem sinna HIV jákvæðum eru í lykilstöðu til að mæta þörfum þeirra fyrir fræðslu og sálfélagslegan stuðning í kjölfar greiningar. Tímabært er að hjúkrunarfræðingar endurskoði nálgun sína í HIV þjónustu.
Source: Skemman
Author: Anna Tómasdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011003177
Cites: 111
Cited by:
Related to: 10