Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að kanna og leggja mat á áhrif stjórnunarnámskeiðs á vegum sveitarfélags á leiðtogahætti og faglega þróun stjórnenda innan hins opinbera. Eins var miðað að því að bera kennsl á áskoranir og þörf á starfsþróun sem þessir stjórnendur upplifðu áður en þeir tókust á við námið og kanna á hvaða hátt þeir upplifðu að námið svaraði þessum þörfum. Einnig komu þátttakendur með tillögur að úrbótum að náminu. Notast var við eigindlega aðferðafræði við framkvæmd rannsóknarinnar. Þátttakendur voru 11 talsins og svöruðu þeir spurningalista með opnum spurningum áður en þeir tóku þátt í náminu. Eftir að námi lauk voru hálfopin viðtöl tekin við þátttakendur í rannsókninni. Niðurstöður benda til að leiðtogaþjálfun hafi jákvæð áhrif á störf þátttakenda. Þeir upplifðu sig öruggari sem stjórnendur og sumir sáu breytingu í eigin hegðun t.d. þegar kom að samskiptum við starfsfólk. Út frá niðurstöðum er hægt að draga þá ályktun að þátttakendur öðluðust bætta færni sem leiðtogar með aukinni meðvitund í viðbrögðum og ákvarðanatöku. Einnig kom í ljós að þátttakendum fannst gagnlegt að kynnast öðrum stjórnendum og mynda tengsl við aðra innan sveitarfélagsins.
Source: Skemman
Author: María Baldursdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011106735
