Lífsgæði 8-17 ára getumikilla barna með einhverfu : mat og upplifun barna og foreldra
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Rannsóknin fjallar um lífsgæði 8 ─ 17 ára getumikilla barna með einhverfu. Markmið hennar var þríþætt; í fyrsta lagi að kanna upplifun getumikilla barna með einhverfu á lífsgæðum sínum samanborið við jafnaldra í samanburðarhópi. Í öðru lagi að skoða hvernig foreldrar barnanna meta lífsgæði þeirra og loks að kanna eiginleika lífsgæðamatslistans KIDSCREEN-27 með hópnum. Rannsóknin er hluti af stærra verkefni sem nefnist Lífsgæði, þátttaka og umhverfi barna sem búsett eru á Íslandi og er hún unnin í samstarfi við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Rannsóknin byggði á skýrandi raðsniði blandaðs rannsóknarsniðs. Í upphafi var megindlegum gögnum safnað með KIDSCREEN-27. Alls svöruðu 109 börn og 130 foreldrar í rannsóknarhópi og 251 barn og 286 foreldrar í samanburðarhópi. Gagnasöfnun var síðan lokið með eigindlegum viðtölum við fimm getumikil börn með einhverfu til að dýpka niðurstöður lífsgæða¬matslistans. Niðurstöður gefa til kynna að getumikil börn með einhverfu eru almennt jákvæð gagnvart stöðu sinni í lífinu þótt erfiðleikar séu til staðar. Á KIDSCREEN-27 mátu þau lífsgæði sín innan hálfs staðalfráviks frá meðaltali normalkúrfunnar á öllum fimm lífsgæðavíddunum. Lægstu skorin voru innan víddanna Hreyfiathafnir og heilsa og Vinatengsl þar sem lífsgæðin voru á mörkum þess að vera minni en almennt gerist. Þá mátu börnin lífsgæði sín marktækt minni en jafnaldrar í samanburðarhópi á öllum víddum. Í viðtölum kom mikilvægi bjargráða og stuðnings fram, ýmist frá vinum, fjölskyldu eða aðilum innan skólans. Foreldrar getumikilla barna með einhverfu mátu lífsgæði barna sinna undir hálfu staðalfráviki frá meðaltali normalkúrfunnar í fjórum af fimm víddum; Hreyfiathafnir og heilsa, Líðan og sjálfsmynd, Vinatengsl og Skóli og nám. Töldu þeir því atriði innan víddanna draga úr lífsgæðum barna sinna. Í víddunum fjórum var marktækur munur á mati barna og foreldra. Þá mátu foreldrar lífsgæði barna sinna marktækt minni en foreldrar jafnaldra í samanburðarhópi á öllum víddum. Innri samkvæmni vídda KIDSCREEN-27 (Cronbach’s–α) var á bilinu 0,790 ─ 0,893 fyrir sjálfsmatslistann en 0,705 ─ 0,916 fyrir foreldraútgáfu. Í viðtölum kom fram að kvarðinn og spurningar matslistans væru skýrar og einfaldar. Rannsóknin varpar ljósi á mat og upplifun getumikilla barna með einhverfu og foreldra þeirra á lífsgæðum barnanna. Niðurstöðurnar geta nýst við skipulag á þjónustu við hópinn og gefa tilefni til að huga beri sérstaklega að þáttum sem tengjast félagslegri þátttöku og líkamlegri virkni meðal barnanna. Þá undirstrikar rannsóknin mikilvægi þess að leita til barnanna sjálfra varðandi upplýsingar um líf þeirra og daglega þátttöku. \n \nLykilorð: Lífsgæði, getumikil, einhverfa, KIDSCREEN-27, sjálfsmat.
Source: Skemman
Author: Linda Björk Ólafsdóttir 1985
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011115774
