Líkamsímynd unglinga : áhrif félags- og menningarlegra þátta
Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er fjallað um áhrifaþætti á líkamsímynd unglinga. Unglingsárin eru tímabil andlegra og líkamlegra breytinga. Á kynþroskaskeiðinu verða breytingar á líkamsvexti og þyngd. Sumir unglingar eiga erfitt með að meðtaka þessar breytingar og taka líkama sinn í sátt. Unglingum er því mikilvægt að hljóta jákvæða reynslu og stuðning frá þeim félags- og menningarlegu þáttum sem umhverfis þá eru. Hvert sem litið er innan samfélaga má sjá að félags- og menningarleg skilaboð og pressa geta verið yfirþyrmandi. Pressan til þess að líta út eins og samfélagið vill verður sífellt meiri. Unglingar sem tileinka sér þessi skilaboð geta byrjað að þróa með sér óæskilega hegðun gagnvart mat og þyngd. \n \nEins margir og mennirnir eru, geta félags- og menningarlegir þættir haft margvísleg áhrif á einstaklinginn sjálfan, sem og kynin. Í gegnum tíðina hafa stúlkur verið áhrifagjarnari en drengir og virðist sem svo að áhrifin hafi meira vægi hjá þeim. Helsta markmið margra stúlkna er að grennast og hafa fallegan líkamsvöxt. Með árunum hefur þetta þó verið að breytast því vöðvastæltur karlmannslíkami fær æ meiri athygli. Í ritgerðinni verður því leitast við að skoða hvaða áhrif fjölskylda, jafningjar (vinir), fjölmiðlar og menning hafa á líkamsímynd kynjanna á unglingsárunum.
Source: Skemman
Author: Díana Ólafsdóttir 1991
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011180944
