Málþroskaröskun DLD fjögurra til sex ára barna. Birtingarmyndir, greining og stuðningur í daglegu starfi.
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð sem lögð er fram til BA-prófs í almennum málvísindum á hugvísindasviði Háskóla Íslands er fjallað um hugtakið málþroskaröskun DLD (e. Developmental Language Disorder) þar sem áhersla er lögð á börn í tveimur elstu árgöngum í leikskóla og 1. bekk grunnskóla. Málþroskaröskun DLD, sem talin er hafa áhrif á um 7-9% barna, er dulið ástand sem hefur áhrif á ólíka þætti tungumálsins. Börn með málþroskaröskun DLD mynda fjölbreyttan hóp, en þau eiga það sameiginlegt að glíma við erfiðleika við tjáningu og skilning tungumálsins. Þegar einstaklingar ná ekki tökum á tungumálinu á dæmigerðan hátt, það er án taugafræðilegra, vitsmunalegra eða tilfinningalegra orsaka, fá þeir greiningu á málþroskaröskun DLD. Einkenni röskunarinnar eru margskonar, þar á meðal vandamál við tileinkun og beitingu málfræðireglna, setningamyndun og notkun tungumálsins. Börn með málþroskaröskun DLD þekkja færri orð en jafnaldrar þeirra og mál þeirra er einfaldra sem leiðir til þess að orðaforði þeirra er oft einsleitari. Þetta getur haft veruleg áhrif á námsárangur barna, félagsfærni og atvinnuárangur seinna meir. Því er mikilvægt að umhverfið allt sýni þeim skilning og styðji við máltöku og nám, því með réttum stuðningi geta einstaklingar með málþroskaröskun DLD þróað hæfileika sína, lifað ánægjulegu lífi og lagt sitt af mörkum til samfélagsins.
Source: Skemman
Author: Dalrós Líndal Þórisdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Keywords: specific language impairment, preschool children, early intervention, speech therapy, speech sound disorders, articulation, phonological disorders, language comprehension, language production, sentence structure, academic performance, elementary school students, family support, language disorders in children
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011196487
