Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Sykursýki af tegund 2 er langvinnur sjúkdómur sem tengist erfðum, líkamsþyngdarstuðli og lífsstíl (WHO, 2009). Rannsóknir benda til að breyting á lífsstíl ásamt lækkun á líkamsþyngdarstuðli geti minnkað áhættu á sykursýki af tegund 2 um allt að 58% hjá áhættuhópum. Samkvæmt nýlegri evrópskri rannsókn er neikvæð fylgni á milli fjölda lífsstílsbreyta sem fólk fylgir og langtímasykurs (Hba1c). \nMarkmið þessarar rannsóknar er að skoða bakgrunn þeirra sem eru með sykursýki og meta hvort stéttarstaða þeirra sé betri eða verri en annara. Að skoða lífsstíl þeirra sem eru með sykursýki og meta hvort hann sé betri eða verri en annara. Að skoða hvaða breytur hafi mestu áhrifin á lífsstíl óháð sjúkdómum og hvaða þættir hafi áhrif á breyturnar. \nNotuð eru gögn sem safnað var af Lýðheilsustöð árið 2007 í Landskönnun á heilsu og líðan Íslendinga. Rannsóknar- og viðmiðunarhóparnir í þessari rannsókn samanstanda af þátttakendum á aldrinum 40-79 ára, samtals 4.155 einstaklingum. Bornir eru saman þeir sem eru með sykursýki og þeir sem eru með háþrýsting annarsvegar og þeir sem eru hvorki með sykursýki eða háþrýsting hinsvegar. Stuðst er við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar til að ákvarða hvað telst góður lífsstíll. 14 lífsstílsbreytur eru skoðaðar út frá opinberum ráðlegginum. Að auki eru skoðuð meðaltöl breyta sem tengjast lífsstíl og sykursýki en engar ráðleggingar eru til um. \nNiðurstöður sýna að þeir sem eru með sykursýki eru marktækt eldri, með almennt verri stéttarstöðu og hærri líkamsþyngdarstuðul en báðir viðmiðunarhóparnir. Það er ekki marktækur munur á milli rannsóknarhóps og viðmiðunarhópa í fjölda lífstílsbreyta sem fylgt er. Þeir sem eru með sykursýki taka sjaldnar lýsi, neyta sjaldnar sætinda og kartaflna, hrísgrjóna og pasta og hreyfa sig minna en viðmiðunarhóparnir. Þeir eru einnig líklegri til að vera með skerta göngugetu og með lengri settíma. Jákvæð fylgni er á milli aldurs og fjölda lífsstílsbreyta sem fylgt er og var sú breyta ein og sér með hæsta skýringarhlutfallið. Sú breyta sem er með hæsta skýringarhlutfalli fjölda lífsstílsbreyta eftir að tekið var tillit til kyns og aldurs er breytan „reynir að borða hollan mat“. Af lífsstílsbreytunum er breytan „borðar morgunmat“ með hæsta skýringarhlutfallið. Aldur, kyn og líkamsþyngdarstuðull hafa áhrif á lífsstíl ásamt stéttarstöðu. Hægt er að greina ákveðið mynstur í lífsstíl út frá henni. Allar lífsstílsbreyturnar hafa áhrif á hvor aðra en ekki var hægt að greina mynstur í því. \nÞar sem stéttarstaða sykursjúkra er verri en annara en lífsstíll þeirra er ekki verri má draga þá ályktun að þeir hafi breytt lífsstíl sínum á einhverjum tímapunkti. Taka þarf tillit til skertrar göngugetu sykursjúkra við fræðslu til þeirra. Líkamsþyngdarstuðull hækkar hratt fram að 40 ára aldri og stendur í stað eftir það. Mikilvægt er að beina forvörnum til ungs fólks til að draga úr þessari þyngdaraukningu. Hreyfing minnkar með aldrinum. Það bendir til þess að fituhlutfall fólks haldi áfram að aukast þrátt fyrir það að líkamsþyngdarstuðullinn standi í stað. Þeir sem eru ekki í launuðu starfi hreyfa sig mun minna en aðrir. Í ljósi þess að hlutfall ellilífeyrisþega, atvinnulausra og öryrkja hefur aukist hratt á síðustu árum er mikilvægt að auka hreyfingu í þessum hópi, eða reyna að koma í veg fyrir að hún minnki með sértækum aðgerðum sem tekur tillit til skertrar göngugetu þessa hóps.
Source: Skemman
Author: Ingibjörg Guðmundsdóttir 1971
Language: Icelandic
Topic: Health and Lifestyle Studies
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011215947
