Málkunnátta ungfullorðinna Íslendinga með erlendan bakgrunn í íslensku, ensku og móðurmálinu: Breytingar frá unglingsárum
Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið: Rannsóknir á tví- og fjöltyngdum börnum (M2) á Íslandi gefa til kynna að staða þeirra í íslensku sé mjög slök. Þau ná upp til hópa ekki góðum tökum á íslensku og meðal unglinga er enn stór hluti með lítil tök á málinu. Áhyggjur eru af að þessi hópur sitji ekki við sama borð og jafnaldrar þeirra sem hafa íslensku sem fyrsta mál í tækifærum til menntunar og starfa vegna bágrar færni þeirra í íslensku. Rannsókn Elínar Þallar Þórðardóttur (2021a) sem kallaðist Adolescent language outcomes in a complex trilingual context: When typical does not mean unproblematic bar saman mállega færni M1 (með íslensku sem móðurmál) og M2 unglinga í íslensku, ensku og móðurmáli sínu. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að M2 börnin voru langt undir meðaltali í íslensku og ensku en M1 börnin hins vegar í meðalgetu í íslensku en undir meðalgetu í ensku. Rannsóknin sýndi einnig fram á áreiðanleika sjálfsmats barnanna í bæði ensku og íslensku. Engar rannsóknir eru til sem meta mállega færni ungfullorðinna M2 einstaklinga. Markmið þessarar rannsóknar eru að meta mállega færni ungfullorðinna einstaklinga á Íslandi, þ.e. einstaklinga sem eru u.þ.b. á aldrinum 18–23 ára, sem hafa annað móðurmál en íslensku og hvernig málkunnátta þeirra hefur nýst þeim eftir að grunnskóla lauk. Markmiðið var að meta færni þátttakendanna í íslensku, en líka hvernig heildarmálkunnátta þeirra dreifðist á íslensku, ensku og móðurmál þeirra. Annað markmið var að fá álit þátttakendanna á hvort málkunnátta þeirra gerði þeim kleift að stunda það nám, þá vinnu og þau félagslegu samskipti sem þau hefðu áhuga á eða hvort málkunnátta þeirra hefði á einhvern hátt hamlað þeim. Þau voru einnig beðin um að tilgreina hvort það hefði verið hægt að undirbúa þau betur undir nám eða í íslensku og þá á hvaða skólastigi sem var. \nAðferð: Í þessari rannsókn var M2 þátttakendum úr fyrri rannsókn Elínar Þallar fylgt eftir og málleg færni þeirra metin með stöðluðum prófum; Milli mála prófinu á íslensku, PPVT-4 og EVT-2 á ensku. Einnig voru þrír sjálfsmatslistar lagðir fyrir; LEAP-Q, bakgrunnsspurningalisti og Málfærni við ýmsar aðstæður daglegs lífs: Spurningalisti, og að lokum voru tekin símaviðtöl við þátttakendur. Þrettán þátttakendur samþykktu að taka þátt í rannsókninni og tekið var símaviðtal við 11 af fyrrgreindum 13. \nNiðurstöður: Niðurstöður gáfu til kynna að þátttakendur höfðu bætt sig í íslensku og ensku, mælt með stöðluðum prófum. Niðurstöður sjálfsmatslistanna gáfu til kynna að almennt mátu þau mállega færni sína besta í íslensku, þar næst ensku og að lokum í móðurmáli sínu. Þessi niðurstaða er svipuð því sem út kom í fyrri mælingu. Þeir þátttakendur sem náðist í og samþykktu að taka þátt voru þeir sem þegar höfðu góða íslenskukunnáttu sem unglingar. Flestir þátttakenda eru í því námi og/eða þeirri vinnu sem þau höfðu hug á að fara í. Niðurstöður símaviðtala gáfu til kynna að allir þátttakendur fóru í framhaldsskóla eftir grunnskóla, fæstir þurftu aðstoð en einhverjir hefðu viljað að lögð væri meiri áhersla á íslenska málfræði og orðaforða í náminu. Þeir sem voru ánægðir með móttöku skólans og stuðning við M2 nemendur höfðu sumir verið í sértímum fyrir M2 nemendur. Þeir sem töldu móttöku og stuðningi vera ábótavant nefndu að hlutfall M2 nemenda í skólanum hefði verið of hátt, áhersla kennara á móðurmál nemendanna verið of mikil og skólinn hefði ekki svarað ákalli um aukinn stuðning. \nUmræður: Þrátt fyrir að ekki sé hægt að yfirfæra niðurstöður rannsóknarinnar yfir á stærra þýði M2 ungfullorðinna á Íslandi vegna smæðar úrtaksins þá gefa þær til kynna að augljóst er að til er hópur M2 einstaklinga sem elst upp á Íslandi, nær góðum tökum á íslenskunni og virðist sitja við sama borð og eintyngdir jafnaldrar þeirra. Mikilvægt er að hlusta á raddir þeirra einstaklinga sem hafa reynslu af því að alast upp tvítyngdir á Íslandi og ná góðum tökum á málinu um hvað vel er gert og hvað, að þeirra mati, er hægt að gera betur.
Source: Skemman
Author: Guðrún Hafliðadóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011225413
