Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed. gráðu í kennarafræðum við Háskólann á Akureyri. Tilgangur verkefnisins er að varpa ljósi á áhrifaþætti í ánægjulegri upplifun af lestri og koma auga á leiðir til að hvetja til aukins lesturs og efla áhuga. \nFræðilegur hluti ritgerðarinnar er byggður á rannsóknum og fræðigreinum sem gefa til kynna áhrifaþætti í lestraránægju. Lestur er vitsmunalegt ferli og því er lestrarupplifun einstaklingsbundin. Lesskilningur er ein grundvallarforsenda ánægjulegrar upplifunar af lestri en skilningur á texta gerir lesanda kleift að lifa sig inn í efnið og draga ályktanir. Í ritgerðinni er fjallað um þætti sem hafa áhrif á lesskilning og greint frá lesskilningsaðferðum. Í rannsóknum á lestrarvenjum barna er komið inn á kynjamun í lesskilningi, áhuga á lestri og misjafnar lestrarvenjur en drengir standa stúlkum ekki jafnfætis hvað þessa þætti varðar. Afgerandi niðurstaða rannsókna á lestrarvenjum koma inn á mikilvægi þess að tengja lestur áhugasviði lesenda. Áhugahvöt getur virkað sem drifkraftur á lestur og eykur lestraránægju. Niðurstöður benda jafnframt til að mæta þurfi ólíkum þörfum og löngunum í tengslum við form lestrarefnis. Lestur er ekki aðeins bundinn við bóklestur hann nær til allra forma lestrarefnis og er ávallt af hinu góða. Félagsleg samskipti hafa mikið að segja í lestraránægju, félagsleg áhrif koma fram þegar börn ræða sín á milli og við lestrarfyrirmyndir sínar. \nUnninn er hugmyndabanki sem byggir á fræðilega hluta ritgerðarinnar en markmið hans er að benda á leiðir til að efla áhuga á lestri og hjálpa nemendum að upplifa lestur sem áhuga- og eftirsóknarverða iðju.
Source: Skemman
Author: Ragnheiður Guðný Magnúsdóttir 1979
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011246178
