Work

Meira en orð : myndrænt námsefni sem styður við setningamyndun og málfræði ungra barna

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Mikilvægt er að máltaka barna gangi vel fyrir sig og að þau öðlist góðan málþroska. Málþroski felur meðal annars í sér orðaforða, málfræði og setningamyndun. Grunnur að þessum færniþáttum er lagður á leikskólaárunum en þeir eru grunnstoðir læsis. Flest börn ná tökum á þeim án sérstakrar kennslu, en það á því miður ekki við um öll börn. Rannsóknir á málþróun tví- og fjöltyngdra barna sem eru að læra íslensku benda til þess að færni þeirra í íslensku við upphaf grunnskólagöngu sé oft bágborin. Þetta kemur niður á lestrarnámi þeirra og námsgengi. Mörg íslensk börn glíma jafnframt við vanda í máli og læsi sökum raskana eða ónógrar örvunar. Á leikskólaárunum, sem eru næmiskeið máltökunnar, er brýnt að bera kennsl á þessi börn og veita þeim íhlutun við hæfi því snemmtæk íhlutun í máli og læsi getur skipt sköpum varðandi þroska- og námsframvindu þeirra. \nTöluvert er til af íslensku námsefni sem ætlað er til að efla framburð, hljóðkerfisvitund og orðaforða leikskólabarna með ýmsum hætti en námsefni sem styður við setningamyndun og málfræði er enn sem komið er af skornum skammti. Markmið þessa meistaraprófsverkefnis var því að útbúa námsefni til að efla þessa þætti í máltöku barna. Námsefnið Meira en orð byggir á fræðilegri samantekt um málþroska, hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar, beinnar kennslu, Tákna með tali (TMT) og starfsreynslu höfundar. Námsefnið er ætlað til málíhlutunar hjá þriggja til sex ára börnum, í einstaklings- eða paravinnu þar sem beinni kennslu er beitt samhliða mynda- og táknrænum stuðningi. Tilraunakennsla á námsefninu gaf til kynna þörf fyrir námsefni sem þetta og að það gæti nýst til að mæta þörfum íslenskra og erlendra leikskólabarna sem og erlendra barna á yngsta stigi grunnskóla, sem þurfa íhlutun í íslenskri málfræði og setningauppbyggingu. Að auki getur námsefnið hentað börnum sem hafa þörf fyrir skýran sjón- og táknrænan stuðning og endurtekningu.
Source: Skemman
Author: Matthildur E Vilhjálmsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011323711
Cites: 28
Cited by:
Related to: 10