Lilja og Kári : handrit að barnabók sem ætlað er að stuðla að áhuga barna á náttúrunni
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Lokaverkefnið samanstendur af barnabókinni Lilja og Kári og fræðilegri greinargerð. Markmið bókarinnar er að auka áhuga barna og foreldra á að verja tíma úti í náttúrunni. Með greinargerð þessari vil ég rökstyðja hvers vegna þetta málefni er mikilvægt og hvers vegna barnabók var talin vænleg leið til að hafa áhrif á viðhorf barna. Rannsóknir sýna að frjáls leikur og útivera barna hefur minnkað svo um munar og þau eru sífellt að fjarlægjast náttúruna, á sama tíma og þekking okkar á mikilvægi náttúrunnar fyrir þroska og heilsu barna er að aukast. Jafnframt hefur sá tími sem varið er í náttúrunni verið tengdur umhyggju og virðingu fyrir henni, sem er nauðsynlegur grunnur þess að kynslóðir framtíðarinnar hugsi vel um náttúruna. Rannsóknir sýna að barnabækur eru öflugur miðill í félagsmótun barna og því góð leið til að hafa áhrif á skoðanir og viðhorf þeirra. Bækur eru auk þess vel til þess fallnar að vekja áhuga og umræður á hinum ýmsu málefnum. Handrit að bókinni Lilja og Kári (í fylgiskjali) er skrifað með þessi fræði að leiðarljósi og talið er líklegt að bókin muni hafa jákvæð áhrif á börn og sýn þeirra á náttúruna.
Source: Skemman
Author: Pála Margrét Gunnarsdóttir 1994
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Literature and Literary Theory
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011381136
