Work

Lyf til þyngdarstjórnunar, samanburður á mismunandi lyfjaformum, kostir og gallar. Fræðileg samantekt.

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Ofþyngd og offita er hratt vaxandi vandamál í heiminum. Offita er nýlega orðin viðurkenndur langvinnur sjúkdómur í heilbrigðiskerfinu og helsta meðferðin við honum eru lífstílsbreytingar. Tiltölulega nýlega hafa lyf verið sett á markað með því markmiði að aðstoða fólk við þyngdartap, til þess að koma í veg fyrir heilsukvilla. Þessi lyf hafa á mettíma náð miklum vinsældum um allan heim og að öllum líkindum orðin vinsælli en skurðaðgerðir. \nTilgangur: Að kanna og lýsa mismunandi aðferðum til þyngdarstjórnunar og lýsa kostum og göllum þyngdartstjórnunarlyfja. Enn fremur er tilgangurinn með þessari fræðilegu samantekt að auka þekkingu heilbrigðisstarfsfólks á lyfjum til þyngdarstjórnunar og gera samantekt um viðfangsefnið sem hægt væri að nota í framtíðarrannsóknum innan þessa sviðs. \nAðferð: Verkefnið er fræðileg samantekt þar sem höfundar leituðu heimilda í gagnagrunninum PubMed. Heimildaöflun fór fram á 4 mánaða tímabili, frá janúar til apríl 2024. Rannsóknir þurftu að uppfylla ákveðin inntökuskilyrði, meðal annars að vera fræðigreinar frá árunum 2014-2024, vera á íslensku eða ensku og vera auðlesanlegar. Þátttakendur rannsóknanna voru ýmist einstaklingar í ofþyngd og einstaklingar á lyfjum til þyngdarstjórnunar. \nNiðurstöður: Þyngdarstjórnunarlyf er góður valkostur fyrir fólk sem er í yfirþyngd en þó ætti ekki að nota þyngdarstjórnunarlyf eitt og sér til meðferðar við offitu. Hvetja ætti fólk til þess að gera lífsstílsbreytingar samhliða því að nota lyfið. Teymi af heilbrigðisstarfsmönnum ættu að fylgjast með skjólstæðingum sem eru á þyngdarstjórnunarlyfjum vegna aukaverkana sem geta komið fram við notkun þessara lyfja. Fólk er í auknu mæli að nota þyngdarstjórnunarlyf sem er ekki í yfirþyngd og það gæti verið hættulegt til dæmis vegna blóðsykursfalls. \nÁlyktanir: Þörf er á langtímarannsóknum um þyngdarstjórnunarlyf og eftirfylgni eftir að þyngdartapi hafi verið náð til þess að kanna lífsgæði einstaklinga eftir þyngdartap. Að auki vantar frekari rannsóknir á langtímaáhrifum hjá þeim sem nota þyngdarstjórnunarlyf sem eru ekki í yfirþyngd. Ásamt því vantar einnig klínískar leiðbeiningar fyrir íslenska heilbrigðiskerfið um hvernig á að huga að fólki sem er á þyngdarstjórnunarlyfjum, varðandi lyfja tegund, aukaverkanir og eftirfylgni. Fólk getur verið með næringarskort þó það sé í yfirþyngd og því þarf aukið eftirlit með næringar stöðu hjá fólki sem er á þyngdarstjórnunarlyfjum.
Source: Skemman
Authors: Inga Lára Jónsdóttir 1999-, Þóra Jónsdóttir 1999-, Laura Stefany Oriri Lastra 1999-
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011453580
Cites: 58
Cited by:
Related to: 10