Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Meistaraprófsritgerð þessi er skólaþróunarverkefni þar sem námsefnið Megir þú blómstra fyrir lífsleikni á mið- og unglingastigi grunnskóla var hannað, kennt og metið. Námsefnið er byggt á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði og gjörhygli og hefur að geyma fimm meginþætti; heilbrigðan lífsstíl, tilfinningagreind, seiglu, styrkleika og flæði. Tilraunakennslan fór fram haustið 2012 í fimm bekkjum og tveimur árgöngum á mið– og unglingastigi í lífsleikni og var hún samþætt öðrum námsgreinum. Í kennsluaðferðum var unnið út frá hugmyndafræði John Dewey um menntun og þær byggðar á umræðu- og spurnaraðferð, útlistunarkennslu, hópvinnubrögðum og innlifunaraðferð. \nRannsóknarsnið verkefnisins er tilviksrannsókn og er unnið út frá fimm þátta margprófun og etnógrafískri nálgun. Á meðan á kennslu námsefnisins stóð voru haldnir vikulegir fundir með kennurum. Þeir héldu einnig dagbók sem rannsakandi hafði aðgang að til gagnagreiningar ásamt því að koma í vettvangsheimsóknir. Þegar kennslu námsefnisins lauk var nafnlaus spurningalisti lagður fyrir kennarana og tekin einstaklings- og rýnihópaviðtöl við þá. Rannsóknarspurningar voru í stöðugri þróun á meðan á tilraunakennslunni stóð. Að lokum urðu þær þessar: Hver er reynsla kennara af skólaþróunarverkefninu? Hvernig meta kennarar vellíðan nemenda sinna eftir að hafa farið í gegnum verkefnið? Hvernig eru umhyggjutengsl kennara við nemendur eftir að hafa farið í gegnum skólaþróunarverkefnið? \nNiðurstöður rannsóknarinnar benda til ánægju kennara með námsefnið og að þeim hafi einnig fundist það hjálpa nemendum að tjá sig á opinn og einlægan hátt um tilfinningar sínar. Einnig að vellíðan þeirra hafi aukist jafnt innan sem utan skólans. Kennurum fannst námsefnið hjálpa sér við að nálgast nemendur sína á virðingarfullan hátt þar sem umhyggja var höfð að leiðarljósi í samskiptum. \nÁ síðustu árum og áratugum hefur verið lögð áhersla á að mæta þörfum nemenda í áhættuhópum en síður á það hvernig auka megi vellíðan nemenda í skólastarfinu almennt. Rík þörf er þó á því samkvæmt upplifun þeirra kennara sem tóku þátt í verkefninu. Vonandi er þetta þróunarverkefni skref í rétta átt að því að innleiða hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði og gjörhygli í auknum mæli í starfi grunnskólanna.
Source: Skemman
Author: Dóra Guðrún Þórarinsdóttir 1974
Language: Icelandic
Subfield: Visual Arts and Performing Arts
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011521020
