Work

Notagildi ómskoðunartækja fyrir greiningu og meðhöndlun sjúkraþjálfara

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Inngangur: Notkun ómskoðunar (e. diagnostic ultrasound) hefur verið að ryðja sér til rúms meðal sjúkraþjálfara síðustu ár en minna hefur borið á notkun tækjanna hér á landi. Helstu ástæður þess geta verið mikill kostnaður, tímaleysi og kröfur um mikla sérhæfingu. Í gegnum tíðina hafa fáar rannsóknir verið gerðar sem sýna fram á notagildi ómskoðunartækja fyrir sjúkraþjálfara en í nýlegum rannsóknum hefur þetta viðfangsefni verið skoðað. \nMarkmið: Markmið rannsóknarinnar er að gera „scoping” samantektarrannsókn um notagildi ómskoðunartækja við skoðun og meðferð sjúkraþjálfara í daglegu starfi. Gerð verður grein fyrir kostum og göllum er varða notkun ómskoðunartækisins og reynt að komast að því hvort sjúkraþjálfarar ættu að nýta sér ómskoðunartæki í daglegu starfi. Þetta er fyrsta „scoping“ samantektarrannsóknin sem rituð er á íslensku um notagildi ómskoðunartækja fyrir sjúkraþjálfara. Leitast var við að svara eftirfarandi spurningu: Ættu sjúkraþjálfarar að nýta sér ómskoðunartæki við greiningu og meðferð í daglegu starfi? \nAðferð: Leitað var í gagnagrunnum Medline – Pubmed, Pedro og Science direct – Elsevier að rannsóknum sem lýstu notagildi ómskoðunartækja í daglegu starfi sjúkraþjálfara. Rannsóknir voru á ensku eða íslensku og birtar eftir 1. janúar 2011. Rannsóknir voru af sönnunarstigi I-III. Útilokaðar voru rannsóknir sem skoða ekki mögulegt klínískt notagildi ómskoðunartækja fyrir sjúkraþjálfara. \nNiðurstöður: Við leitina komu upp 428 rannsóknir en fjórar þeirra uppfylltu inntökuskilyrði „scoping“ samantektarrannsóknar. Ein rannsókn fannst auk þess við skoðun heimildalista. Þrjár rannsóknir voru kerfisbundnar samantektarrannsóknir, ein rannsókn var framskyggn ferilrannsókn og ein rannsókn var samtíma réttmætis og milli matsmanna áreiðanleikarannsókn. Niðurstöður rannsókna sem uppfylltu inntökuskilyrði sýndu jákvæðar vísbendingar um notagildi ómskoðunartækja fyrir sjúkraþjálfara. Erfitt er þó að meta klínískt notagildi ómskoðunartækja fyrir sjúkraþjálfara vegna mismunandi aðferða við mælingu og notkun ómskoðunartækja auk fjölbreytilegrar uppbyggingar sina og vöðva sem mæld eru í rannsóknum. Áreiðanleiki milli matsmanna og innri matsmanns á mælingum með ómskoðunartæki gefa vísbendingar um fínar líkur á áreiðanleika niðurstaða mælinga með ómskoðunartækjum. \nSamantekt: Fáar hágæða rannsóknir um notagildi ómskoðunartækja fyrir sjúkraþjálfara fundust við leitina. Jákvæðar vísbendingar um notagildi ómskoðunartækja fyrir sjúkraþjálfara geta leitt til þess að notkun á ómskoðunartækjum fyrir sjúkraþjálfara aukist töluvert á komandi árum. Frekari hágæða rannsókna er þörf til að álykta betur um klínískt notagildi ómskoðunartækja fyrir sjúkraþjálfara.
Source: Skemman
Author: Hlynur Helgi Arngrímsson
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011523462
Cites: 32
Cited by:
Related to: 10