Work

Notkun NOSACQ-50 spurningalistans við athugun á öryggi starfmanna við vinnu

Year: 2013
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Þessi rannsókn var ferlisathugun á öryggismálum sem fór fram í prentverksmiðju. Tilgangur hennar var að gera úttekt á stöðu öryggismála innan fyrirtækisins og meta þörfina á BBS-inngripi. Úttektin var gerð með NOSACQ-50 spurningalistanum þar sem þátttakendur taka afstöðu til atriða á fjögurra punkta Likert-skala. Listinn inniheldur 50 atriði sem skiptast niður á sjö þætti. Helstu niðurstöður voru þær að öryggismál virtust vera í góðum farvegi innan fyrirtækisins, en þó er hægt að gera betur á nokkrum stöðum. Til að mynda þarf að bæta samskipti sem snúa að öryggismálum, bæði á milli stjórnenda og starfsmanna og á milli starfsmannanna sjálfra. Einnig þarf að hafa starfsfólk meira með í ráðum þegar ákvarðanir eru teknar í öryggismálum og veita því betri þjálfun í öryggismálum.
Source: Skemman
Author: Egill Einarsson 1983
Language: Icelandic
Subfield: Safety Research
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011762858
Cites: 12
Cited by:
Related to: 10