Nemendur með ADHD og grunnskólagangan: þátttaka, umhverfi og þjónusta við hæfi
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Markmið ritgerðarinnar var að varpa ljósi á reynslu tveggja ungmenna, sem greind eru með ADHD, af grunnskólagöngu þeirra ásamt því að kanna hvernig skólaumhverfinu gengur að koma á móts við þarfir þeirra. Rannsóknin er byggð á eigindlegum rannsóknarhefðum og unnin samkvæmt sniði tilviksrannsókna en stuðst við vinnuaðferðir grundaðrar kenningar við úrvinnslu gagna. Gögnin voru byggð á níu viðtölum og þrem vettvangsathugunum. Lykilþátttakendur voru tvö ungmenni og aðrir þátttakendur voru mæður þeirra og umsjónarkennarar og deildarstjóri frá öðrum skólanum ásamt þremur fulltrúum frá tveimur þjónustumiðstöðvum sem koma að málefnum barna með ADHD. Fram kom hjá ungmennunum að reynsla þeirra af grunnskólagöngunni var blendin. Þau voru nokkuð sátt framan af skólagöngunni eða á yngri skólastigum en áttu í meiri erfiðleikum á efsta stigi. Þau gerðu sér grein fyrir erfiðri stöðu sinni og tengdu það ýmist við sjálfa sig eða námsumhverfið. Mæðurnar tvær höfðu áhyggjur af skorti á skilningi og aðlögun í skólunum gagnvart börnum þeirra með ADHD. Niðurstöður í heild benda til að þjónusta skóla beinist frekar að hegðun barna með ADHD í stað þess að laga skólaumhverfinu að þörfum þeirra. Athygli ætti að beinast að því hvernig skerðingar sem fylgja ADHD skarast við þætti í umhverfinu. Megin niðurstöður rannsóknarinnar benda á mikilvægi þess að samspil milli skerðingar og umhverfisþátta eigi sér stað. Sá skilningur er einmitt leiðandi í ýmsum lagaákvæðum sem snúa að börnum og menntun.
Source: Skemman
Author: Sigríður Matthildur Guðjohnsen
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Psychiatry and Mental health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011770988
