Notkun stafrænnar heilbrigðislausnar í formi smáforrits til að bæta lyfjameðferðarheldni hjá einstaklingum með hjartabilun
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Hjartabilun hefur áhrif á um 63 milljónir manna um allan heim og algengi fer vaxandi. Hjartabilun er lýðheilsuvandamál sem veldur verulegu álagi á heilbrigðiskerfið vegna hárrar tíðni sjúkrahúsinnlagna og endurinnlagna. Léleg meðferðarheldni á sér stað hjá yfir 60% sjúklinga með hjarta- og æðasjúkdóma og er það lykilhindrun í því að bæta klínískar niðurstöður sem hafa veruleg áhrif á dánartíðni og sjúkdóma. Árangursrík meðferð á hjartabilun felur í sér bæði lyfjameðferð sem byggir á klínískum leiðbeiningum sem og sjálfstjórnarhegðun. Stafrænar lausnir í formi smáforrita (app) geta hjálpað sjúklingum við sjúkdómsstjórnun og sjálfsumönnun þar með talið lyfjameðferðarheldni. Tilgangur: Tilgangur þessarar rannsóknar var að meta hvort og að hve miklu leyti, stafræn heilbrigðisþjónusta frá Sidekick Health í formi smáforrits (app) í snjallsíma, sem viðbótarmeðferð við hefðbundna læknisþjónustu, hefur á lyfjameðferðarheldni hjá sjúklingum með hjartabilun. Ennfremur að kanna hvort andleg líðan sjúklinga breytir áhrifum smáforritsins á lyfjameðferðarheldni.
Source: Skemman
Author: Sonja Steinsson Þórsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: General Health Professions
Field: Health Professions
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7011851298
