Óráð aldraðra eftir aðgerð á mjaðmabroti: Áhrif hrumleika á óráð, fyrirbyggjandi íhlutun og afdrif
Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Mjaðmabrot er algengt og alvarlegt vandamál víða um heim og óráð fylgir gjarnan hjá þeim sem fara í skurðaðgerð vegna mjaðmabrots. Hægt er að fyrirbyggja allt að þriðjung tilfella óráðs. Þrátt fyrir þau úrræði sem standa til boða er óráð vangreint vandamál innan heilbrigðiskerfisins. Rannsóknarsnið: Kerfisbundin fræðileg samantekt úr megindlegum rannsóknum. Tilgangur: Að varpa ljósi á samspil hrumleika við óráð eftir mjaðmabrotsaðgerð, hvaða íhlutunum er hægt að beita til að fyrirbyggja óráð og hvaða afleiðingar óráð getur haft á viðkomandi einstakling allt upp undir ár eftir óráðið. Aðferð: Leit var framkvæmd í gagnagrunninum PubMed á tímabilinu janúar til mars 2021 þar sem stuðst var við fyrir fram ákveðin inntöku- og útilokunarskilyrði við val á heimildum. Tímabil heimilda var frá 2010–2021. Heimildarleitinni var lýst með PRISMA flæðiriti og voru gæði rannsókna metin með Joanna Briggs gæðamati. \nNiðurstöður: Níu rannsóknir uppfylltu inntökuskilyrði og voru nýttar í fræðilegu samantektina. Rannsóknir sýndu fram á tengsl milli óráðs og hrumleika eftir skurðaðgerð vegna mjaðmabrots en hrumir einstaklingar voru oftar yfir 80 ára, með fleiri undirliggjandi sjúkdóma og skerðingu á færni sem allt voru áhættuþættir óráðs. Fyrirbyggjandi íhlutanir gátu dregið úr tilfellum óráðs eftir skurðaðgerð vegna mjaðmabrots og stytt þann tíma sem einstaklingur var í óráði. Óráð gat valdið varanlegri skerðingu á líkamlegri- og vitrænni getu einstaklinga og var dánartíðni meðal þeirra sem fóru í óráð eftir aðgerð há. \nÁlyktun: Rannsóknir benda til þess að allt að helmingur aldraðra sýni merki um óráð á einhverjum tímapunkti eftir mjaðmabrotsaðgerð og hægt er að fyrirbyggja rúmlega þriðjung þeirra tilfella. Óráð lengir legutíma einstaklinga, hækkar dánartíðni og eykur líkur á að einstaklingur þurfi að flytja á hjúkrunarheimili eftir útskrift. Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingar greini óráð snemma og nýti úrræði til viðeigandi ráðstafana til að minnka alvarleika og tímalengd sem einstaklingur er í óráði. \n \nLykilorð: Óráð, hrumleiki, aldraðir, aðgerð vegna mjaðmabrots, áhættuþættir, fyrirbygging
Source: Skemman
Authors: Dagmar Þóra Öldudóttir, Edda Þórisdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7014030663
