Work

Öll börn eiga rétt á uppeldi : notkun PMTO sem stuðningur við foreldra í uppeldishlutverkinu

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Rannsóknir benda til aukningar á hegðunarvanda barna, auknu álagi á fjölskyldur vegna breytinga á fjölskyldumynstri og aukins agaleysis meðal barna. Á Íslandi eru þó nokkrir aðilar sem bjóða upp á námskeið, fræðslu og ráðgjöf fyrir foreldra. Sé horft til þess fjölbreytta framboðs sem á boðstólum er á þessu sviði virðist vera þörf hjá foreldrum til að leita sér aukinnar þekkingar og færni í uppeldishlutverkinu, eins og uppeldisnámskeið og ýmiskonar fræðsla til stuðnings foreldrum. Áhugavert er að sjá að þegar upp er staðið virðist vera ákveðinn rauður þráður í þeim úrræðum sem í boði eru og byggja þau fyrst og fremst á ást og umhyggju, agastjórnun, að setja börnum mörk, hvetja þau og hrósa þeim fyrir vel unnið verk. \nMeðal þess sem boðið er upp á hér á landi er PMTO foreldrafærni. Rannsóknir sýna að aðferðin ber árangur og að viðheldni sé stöðug. Aðferðin PMTO (e. Parent Management Training, Oregon Model) beinist að því að þjálfa foreldra í að takast á við hegðun barna sem getur valdið erfiðleikum í samskiptum. PMTO byggir á ítarlegum rannsóknum um hegðunarmótun barna og hefur verið í þróun frá því um miðja síðustu öld. Vegna aukningar á tilkynningum um hegðunarvanda til sérfræðinga eins og lækna og sálfræðinga, hefur þessi aðferð verið innleidd á Íslandi og er í dag boðið upp á menntun í PMTO á landi bæði fyrir fagfólk sem starfar með börnum og einstaklinga sem vilja starfa sem meðferðaraðilar. \n Helstu niðurstöður þessarar samantektar um PMTO sýna að meðferðin ber árangur og styður vel við foreldra í uppeldi barna sinna, óháð fjölskyldugerð, menningu og tungumáli. Rannsóknir sem gerðar hafa verið víðsvegar um heim styðja meðferðina, virkni hennar og árangur.
Source: Skemman
Authors: Birna Hjaltalín Pálmadóttir 1983, Sigríður Hulda Guðbjönsdóttir 1978
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7014163216
Cites: 38
Cited by:
Related to: 10