Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Nýlegar rannsóknir hafa varpað ljósi á að feður og mæður sem vinna ekki úr sínum áföllum geta borist til ókominna barna þeirra. Hvort sem einstaklingur verður fyrir áfalli í æsku eða seinna á lífsleiðinni þá geta óunnin áföll haft með sér erfiðar og jafnvel lífshættulegar afleiðingar. Áfall hefur áhrif á líkamsstarfsemi okkar og taugar og fyrir ungabörn getur áfall komið í veg fyrir eðlilegan þroska. Til að skilja áföll einstaklinga er mikilvægt að vera meðvitaður um umhverfið sem sá einstaklingur elst upp í. Með því að þekkja kenningar á borð við vistfræði- og uppeldislíkani Belsky´s getur það auðveldað starf félagsráðgjafa við að skilja, einstaklings-, fjölskyldu-, samfélags-, og menningarþætti þess sem um ræðir. Auk þess getur góð þekking á hugtökum á borð við ofbeldi og vanrækslu haft gríðarleg áhrif þegar unnið er með viðkvæmum hópum sem verða fyrir barðinu á annaðhvort ofbeldi eða vanrækslu. Heimilisofbeldi er svartur blettur á samfélaginu og því er mikilvægt að þekkja einkenni heimilisofbeldis, grípa sem fyrst inn og auka fræðslu svo hægt sé að draga úr langvarandi afleiðingar áfalla.
Source: Skemman
Author: Kristbjörg Eva Andersen Ramos
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7014167792
