Work

Öryggismenning íslenskra fyrirtækja í mannvirkjagerð : könnun á viðhorfi, tíðni og kostnaði vegna vinnuslysa

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Í verkefni þessu er gerð úttekt á öryggismenningu og tíðni vinnuslysa og tengdum kostnaði við verklegar framkvæmdir. \n \nByrjað var á að kanna viðhorf stjórnenda íslenskra verktakafyrirtækja til öryggismála, sem og hvernig framkvæmd og stjórnun öryggismála fer almennt fram. Alls tóku 48 fyrirtæki þátt í könnuninni af 225 sem fengu senda spurningalista, svarhlutfall var því 21%. Tíðni vinnuslysa sem ber að tilkynna til Vinnueftirlits ríkisins var könnuð yfir 12 ára tímabil og greining gerð á helstu orsökum vinnuslysa. Haft var samband við opinberar stofnanir og vátryggingafélög og óskað eftir gögnum um þann kostnað sem greiddur er vegna vinnuslysa. \nNiðurstöður sýna að viðhorf til öryggismála er almennt gott í stórum og meðalstórum verktakafyrirtækjum hér á landi. Erfiðara er að segja til um viðhorf lítilla og örfyrirtækja til öryggismála, vegna lítillar svörunar. Niðurstöðurnar gefa þó vísbendingar um að lítil og örfyrirtæki tilkynni síður vinnuslys sem og framkvæmdir áður en vinna hefst á byggingar-vinnustað og vinni síður eftir skipulagðri öryggisstefnu en stærri fyrirtæki. \nÁrlega eru að meðaltali um og yfir 1600 vinnuslys tilkynnt til Vinnueftirlits ríkisins, þar af um 330 sem tengjast mannvirkjagerð. Fórnarlömb vinnuslysa við mannvirkjagerð hér á landi eru fyrst og fremst ófaglærðir karlkyns starfsmenn. Á hverju ári verða fjórir starfsmenn að meðaltali óvinnufærir og að meðaltali þrír til viðbótar sem hætta störfum þrátt fyrir að vera vinnufærir. Fjöldi banaslysa við vinnu í mannvirkjagerð hérlendis er einnig hlutfallslega mjög hár eða að meðaltali 7,62 banaslys á hverja hundrað þúsund starfandi, sem er talsvert hærra en á hinum Norðurlöndunum. \nEinu heildartölurnar um kostnað vegna vinnuslysa fengust frá Sjúkratryggingum Íslands. Tryggingastofnun ríkisins heldur enga skrá um þann kostnað sem stofnunin greiðir út vegna vinnuslysa og atvinnusjúkdóma. Vátryggingafélögin vildu ýmist ekki birta þær fjárhæðir sem greiddar eru út vegna vinnuslysa eða gáfu í skyn að gagnagrunnar gæfu ekki möguleika á að kalla fram slíkar upplýsingar. Kostnaður vegna vinnuslysa er því ekki auðfenginn. Miðað við reynslutölur frá nágrannalöndunum má áætla að árlegur beinn og óbeinn kostnaður vegna vinnuslysa og atvinnusjúkdóma sé allt að 3,8% af vergri landsframleiðslu og gæti því hafa numið allt að 68 milljörðum króna árið 2013 eða 46 milljónum króna á hvert vinnuslys. \n \nÍ umræðum og niðurstöðum er bent á ýmsar aðgerðir við skráningu á slysum og kostnaði þeim tengdum sem gætu orðið til að gera umfang vandans skýrara og þar með aukið mikilvægi þess að vinnuveitendur sinni öryggismálum enn betur en gert er í dag. \n \nLykilorð: Vinnuslys, atvinnusjúkdómar, viðhorf, kostnaður, mannvirkjagerð.
Source: Skemman
Author: Jónas Ásbjörnsson
Language: Icelandic
Subfield: Safety Research
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7014171308
Cites: 26
Cited by: 1
Related to: 10