Work

Perceived safety in urban environments : the effect of building height, brightness, and perceived enclosure

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Rannsóknir hafa sýnt fram á að ýmsir þættir í borgarumhverfi hafi áhrif á það hvernig fólk upplifir það, og þar af leiðandi ákvörðun þeirra um að nýta sér umhverfið eða forðast það. Að skynja öryggi er einn mikilvægasti þáttur sem að umhverfi getur veitt vegfarendum, en rannsóknir hafa sýnt fram á að skynjuð umlyking, hæð bygginga og birtustig hafi áhrif á upplifað öryggi fólks. Þekking á því hvernig þessir þættir geta ýmist dregið úr eða ýtt undir skynjað öryggi er mikilvæg, og sérstaklega þegar kemur að því að hanna og móta borgarumhverfi. Í þessari rannsókn eru áhrif hæðar bygginga, birtustigs og skynjaðrar umlykingar á skynjað öryggi fólks í borgarumhverfi athuguð. Vefkönnun var send út og þátttakendur (N = 349) voru beðnir um að meta annars vegar hversu mikla umlykingu og hins vegar hversu mikið öryggi þeir upplifðu tengt götumyndum sem teknar voru úr sýndarveruleika. Niðurstöður sýndu fram á að hæð bygginga og birtustig höfðu marktæk áhrif á skynjað öryggi sem og skynjaða umlykingu þátttakenda. Niðurstöður sýndu einnig að skynjuð umlyking miðlaði að hluta áhrifum hæðar bygginga og birtustigs á skynjað öryggi. \n\tLykilorð: skynjað öryggi, hæð bygginga, birtustig, skynjuð umlyking, götumyndir
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7014443028
Cites: 25
Cited by: 1
Related to: 10