Work

Possibilities of utilizing societal stocks of electronic waste with recycling, analyzed with system dynamics

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Rafrænn úrgangur er sá flokkur úrgangs sem vex hraðast eins og staðan er í dag. Í þessu rafræna úrgangsstreymi má finna mikið magn og fjölda af málmum. Eðalmálmar, platínumálmar, kopar og aðrir sjaldgæfir málmar eru mikilvægir fyrir tæknilega virkni raftækjanna. Það eru mikið magna af raftækjum í samfélaginu sem mætti nýta sem auðlind fyrir þessa málma með því að beina raftækjum í hágæða endurvinnslu. Þessi nýting á samfélagslegum auðlindum má kalla manngerða hráefnanámu. Gæði málmgrýtis í námum er á niðurleið og á sama tíma eru sívaxandi magn raftækja í umferð, þessi þróun mun auka möguleika á endurvinnslu á raftækjum. Mikið af þessum rafræna úrgangi streymir í dag frá þróuðum ríkjum til þróunarríkja í trássi við alþjóðlegar samþykktir. Þangað er úrganginum varpað eða málmarnir endurunnir með notkun frumstæðra aðferða sem fylgir mikil mengun. Í þessum rafræna úrgangi eru einnig málmar sem eru mikilvægir við framleiðslu á ýmis konar háþróuðum tækjum, t.d. við framleiðslu á tækjum tengdum grænni orku. Framboð á þessum málmum kemur oftar en ekki frá örfáum löndum, endurvinnsla getur hjálpað til við að draga úr óáreiðanlega í framboði þessara málma. Endurvinnsla á raftækjum var skoðuð út frá aðferðum kvikra kerfislíkana. Flæðirit og orsakatengslarit voru gerð til að gefa heildræna sýn á kerfið. Kvikt kerfislíkan var sett upp og hermt í forritinu STELLA®, til að greina mögulegan hag af því fyrir þróuð ríki að endurvinna raftækji út frá fjárhagslegum, umhverfislegum og strategískum sjónarmiðum. Megin framlag þessarar ritgerðar er kerfisleg sýn á endurvinnslu á raftækjum og módel sem leggur mat á heildar kosti og ávinning þess að endurvinna raftæki almennilega.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7014537727
Cites: 27
Cited by:
Related to: 10