Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að athuga próffræðilega eiginleika íslenskrar útgáfu spurningalistans Child Eating Behaviour Questionnaire (CEBQ). Það innihélt að athuga þáttabyggingu og áreiðanleika til samanburðar við bresku útgáfu listans (Wardle o.fl., 2001). CEBQ er 35 atriða spurningalisti sem veitir upplýsingar um matarvernjur barna. í úrtakinu voru 560 foreldrar barna frá fyrsta til sjöunda bekks grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Þáttagreining var gerð á atriðunum 35 og skoðuð bæði sjö- og áttaþáttalausn. Áttaþáttalausn kom betur út og var hún því valin. Undirkvarðar sem finna mátti í íslenskri útgáfu listans voru ,svörun við mat’, ,tilfinningalegt ofát’, ,ánægja við að borða’, ,löngun til að drekka’, ,svörun við mettun’, ,seinlæti í því að borða’, ,tilfinningalegt lystarleysi’ og ,matvendni’. Niðurstöður voru í nokkuð góðu samræmi við upphaflegu rannsókn Wardle o.fl. (2001). Auk þess gaf rannsókn þessi betri próffræðilegan stuðning til að hafa átta undirkvarða í listanum þar sem undirkvarðarnir ,svörun við mettun’ og ,seinlæti í því að borða’ hlóðu sitt á hvorn þáttinn í rannsókn þessari og komu þar með út átta þættir. Hjá Wardle o.fl. (2001) hins vegar hlóðu atriðin tvö á sama þáttinn. Innra samkvæmni var ásættanlegt fyrir alla undirkvarða nema ,svörun við mettun’ (α=0,71-0,90). Niðurstöðurnar gefa til kynna að þýðing listans sé við hæfi þar sem próffræðilegir eiginleikar hans gefa góðan stuðning. Það er því réttlætanlegt að nota íslensku útgáfu CEBQ sem skimunartæki hér á landi í þessum aldurshópi. Hins vegar væri gott að framkvæma víðtækari rannsókn sem næði til lands alls og til breiðari aldurshóps.
Source: Skemman
Author: Elín Kristín Klar 1988
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Nutrition and Dietetics
Field: Nursing
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7014702529
