Work

Samband sjálfsöryggis á samfélagsmiðlum við persónuleikaþætti

Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Frumsaminn spurningalisti (Samfélagsmiðla mælitæki, SMM), var notaður til að mæla sjálfsöryggi á samfélagsmiðlum. Til að tryggja gæði frumsamda listans var hann forprófaður í tveimur umferðum. Einnig var nýst við spurningar úr HEXACO-60 persónuleikaprófsins til að skoða tengsl sjálfsöryggis á samfélagsmiðlum við sex persónuleikaþætti. Spurningalistarnir voru sameinaðir og var þeim dreift í gegnum samfélagsmiðla þar sem söfnuðust 327 þátttakendur í úrtakið. Sjö þættir fengust með þáttagreiningu SMM listans. Settir voru upp fimm aldursflokkar og voru þeir bornir saman við þættina sjö og var Tukey eftirápróf notað til að kanna hvort marktækur meðaltalsmunur væri þar á milli. Fylgni spurninga var skoðuð við heildarlistann, sem og fylgni spurninga innan hvers þáttar. Helstu niðurstöður fylgnireikninga sýndu að yngri aldurshópar skoruðu lægra en þeir eldri á innhverfu, yngra fólk virðist óliklegra til að taka þátt í kommentakerfum og virðast meðvitaðri á áhrif samfélagsmiðla á daglegt líf en þau virðast einnig vera hógværari en eldri aldurshópar.
Source: Skemman
Authors: Magnús Addi Ólafsson - HA, Sunneva Kjartansdóttir - HA, Margrét Hauksdóttir - HA
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015056829
Cites: 31
Cited by:
Related to: 10