Work

Samruni Reiknistofu bankanna og Teris. Upplifun starfsmanna og væntingar

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er fjallað um samruna Reiknistofu bankanna við Teris. Markmiðið með rannsókninni var að kanna hvort væntingar starfsmanna gætu haft áhrif á sálfræðilegan samning þeirra við nýsameinaða Reiknistofu bankanna. Tilgangurinn var að sýna fram á mikilvægi þess að stjórnendur skoði væntingar starfsmanna í samruna með það að leiðarljósi að halda í mikilvæga starfsmenn. \nRannsóknin var eigindleg og framkvæmd voru hálfopin viðtöl við átta starfsmenn. Jafn fjöldi viðmælenda kom frá Teris og Reiknistofu bankanna upprunalega. Ritgerðin skiptist í fræðilegan hluta, umfjöllun um fyrirtækin og rannsóknarhluta. \nNiðurstöður rannsóknarinnar skiptast í fyrirtækjamenningu, upplifun af samrunanum, væntingar starfsmanna til nýsameinaðs fyrirtækis og áhrif þeirra á sálfræðilegan samning starfsmanna við fyrirtækið. \nFyrirtækjamenning nýsameinaðrar Reiknistofu bankanna mun að öllum líkindum byggja á þáttum úr menningum beggja fyrirtækja. Fyrirtækjamenning fyrrum Teris á stóran þátt í yfirburðum þess í samrunanum. Starfsmenn fyrrum RB virðast hafa upplifað meiri óvissu og kvíða en starfsmenn fyrrum Teris. Sú niðurstaða er á skjön við kenningar fræðimanna sem telja starfsfólk minna fyrirtækis í samruna fremur upplifa óvissu og kvíða. Starfsmenn fyrrum Teris sjá stöðugleika og starfsöryggi fylgja samrunanum á meðan starfsmenn fyrrum RB finnst þeir upplifa miklar breytingar. \nVæntingar viðmælenda byggja að mestu leiti á því hvernig hlutir voru fyrir samruna og viðmælendur telja að flestir þættir muni haldast eins og þeir voru í því fyrirtæki sem þeir komu frá. Sá þáttur sem viðmælendur bera mestar væntingar til er möguleiki þeirra til starfsþróunar hjá nýsameinuðu fyrirtæki. Starfsþróun er sá þáttur sem rannsakandi telur að muni breytast mest í nýjum sálfræðilegum samningi starfsmanna við fyrirtækið, aðrar væntingar hafa minni áhrif ef einhver. \nRannsakandi leggur að lokum fram tillögur til stjórnenda Reiknistofu bankanna sem mögulega geta ýtt undir velgengni samrunans. Tillögurnar tengjast niðurstöðum rannsóknarinnar og því fræðilega efni sem til er um aðgerðir gegn þeim vandamálum sem fram komu.
Source: Skemman
Author: Unnur Ýr Konráðsdóttir 1984
Language: Danish
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015176586
Cites: 66
Cited by:
Related to: 10