Röskun barns á einhverfurófi: Áhrif á fjölskylduna
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Röskun á einhverfurófi tekur á sig ýmsar birtingarmyndir og einstaklingar með slíka röskun búa við skerta færni á þremur sviðum: í tengslum við mál og tjáskipti, varðandi félagsleg samskipti og sérkennilega, áráttukennda hegðun. Margt getur breyst í lífi fjölskyldunnar þegar barn með slíka röskun tilheyrir henni en rannsóknir hafa sýnt fram á að foreldrar barna með röskun á einhverfurófi upplifa meira álag og streitu en aðrir foreldrar. Ritgerðin er heimildaritgerð og við gerð hennar var leitast við að svara spurningunni: Hvaða áhrif hefur það á fjölskylduna þegar í henni er barn með röskun á einhverfurófi? Niðurstöður sýna að sé barn í fjösklyldunni með röskun á einhverfurófi geti það haft bæði jákvæð og neikvæð áhrif á foreldrana sjálfa, parasamband foreldra, systkini barnsins og daglegt líf allrar fjölskyldunnar. Séu foreldrar samstíga og finna fyrir stuðningi hefur það jákvæð áhrif á líf fjölskyldunnar. \n \nLykilhugtök: Röskun á einhverfurófi, fjölskyldan, foreldrar, systkini, streita, félagsráðgjöf.
Source: Skemman
Author: Ingibjörg Björnsdóttir 1980
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015261936
