Work

Smiðjan - skapandi skólastarf í þróun : tilraun um kennsluhætti í grunnskóla

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Smiðjan er heiti á þróunarverkefni við unglingadeild Langholtsskóla og snýr að vinnulagi þar sem samþættar eru nokkrar námsgreinar; íslenska, náttúrufræði og samfélagsgreinar auk viðfangsefna sem falla undir upplýsingatækni og stafræna miðlun. Þróunarverkefnið snýst um nýstárleg vinnubrögð af hálfu nemenda og kennara auk samspils upplýsingatækni og kennslufræðilegra hugmynda í námi, hugmynda á borð við verkefnamiðað nám, þemanám, þrautalausnanám, hönnunarmiðað nám og samvinnunám. Áhersla er lögð á samvinnu nemenda og kennara en að auki eru lykilhæfni, sem tilgreind er í aðalnámskrá, og sköpun, einn af grunnþáttum menntunar samkvæmt námskránni, höfð í fyrirrúmi í allri vinnu nemenda (Aðalnámskrá grunnskóla, 2011). Skólaþróunarverkefnið Smiðjan hefur víða vakið athygli fyrir framúrstefnulega nálgun í skólastarfi og er markmið þessa meistaraverkefnis að varpa ljósi á verkefnið, reynslu af verkefninu og þau fræði sem búa að baki. Meistara-verkefnið skiptist í greinargerð, þar sem fjallað er um Smiðjuna í Langholtsskóla í fræðilegu ljósi og stutta handbók fyrir stjórnendur, kennara, kennaranema og annað áhugafólk um skólaþróun, til birtingar undir heitinu Sprellifix – Smiðjan í skapandi skólastarfi. Þá hefur í tengslum verkefnið og samvinnu við félaga höfundar í Smiðjunni orðið til efnisvefur sem á að vera miðlægur grunnur upplýsinga um þróunarverkefnið og birta meðal annars námsefnið sem verður til á þess vegum.
Source: Skemman
Author: Oddur Ingi Guðmundsson
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015315415
Cites: 29
Cited by: 3
Related to: 10