Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar ritgerðar er að kanna orsakir, áhrifamátt, birtingarmyndir og meðferð á tilfinningunni skömm. Jafnframt er markmiðið að gefa skömm faglega rödd innan félagsráðgjafar. Nýlegar rannsóknir hafa bent á að skömm sé lykiltilfinning þess sem gerist dag frá degi í lífi einstaklings (Scheff, 2003). Lítið sem ekkert hefur verið skrifað um skömm og áhrifamátt hennar og því eru heimildir af þessu tagi mikilvæg viðbót við heimildaflóru félagsráðgjafa. Félagsráðgjafi nálgast einstakling á þverfaglegan hátt í sínum víðasta sálfélagslega skilningi. Því er mikilvægt að þekkja til hegðunar á þessari margslungnu tilfinningu skömm og er markmið ritgerðarinnar að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: \n1.\tHvers konar tilfinning er skömm? \n2.\t Hverjar eru birtingarmyndir hennar? \n3.\t Hvernig er hægt að greina og meðhöndla skömm? \nLeitast er eftir því að svara þessum spurningum með því að notast við rannsóknir á sviði skammar þar sem útgefnar ritrýndar greinar eru í aðalhlutverki. Einnig er stuðst við erlendar fræðibækur. Þar sem ekki er um auðugan garð að gresja gagnvart útgefnu efni um skömm á Íslandi er einnig stuðst við almennar greinar. Enginn innan félagsráðgjafar hefur áður skrifað um skömm og hér er því um frumraun að ræða. \n \nLykilorð: félagsráðgjöf, tilfinningar, skömm og sektarkennd.
Source: Skemman
Author: Anna Rós Jensdóttir 1969
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Emotions and Moral Behavior
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015316463
