Sjálfsumönnun einstaklinga með kransæðasjúkdóm og hætta þeirra á að fá sykursýki af tegund 2
Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Síðustu áratugi hefur nýgengi og dánartíðni kransæðasjúkdóms lækkað verulega en vísbendingar eru um að með vaxandi algengi offitu og sykursýki af tegund 2 (SS2) muni nýgengi hækka aftur. Góð sjálfsumönnun getur dregið úr lífsstílstengdum áhættuþáttum og líkum á því að fá kransæðasjúkdóm. \nMarkmið: Að lýsa sjálfsumönnun einstaklinga með kransæðasjúkdóm, hættu þeirra á SS2 og kanna samband milli sjálfsumönnunar og hættu á SS2. \nAðferð: Lýsandi þversniðs- og sambandsrannsókn. Þátttakendur voru fullorðnir einstaklingar sem lögðust inn á Landspítala vegna kransæðasjúkdóms. Gagnasöfnun fór fram við útskrift. Sjálfsumönnun var metin með „Self-Care of Coronary Heart Disease Inventory“ (SC-CHDI) matstækinu, sem metur viðhald og stjórnun í sjálfsumönnun og trú á eigin getu, mögulegt skor 0-100 stig. Hætta á SS2 var metin með „The Finnish Diabetes Risk Score“ (FINDRISK), mögulegt skor 0-26 stig. Við gagnaúrvinnslu var notuð lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði. \nNiðurstöður: Þátttakendur (n=194) voru á aldrinum 35-79 ára, meðalaldur 64,6 ár (sf 9,1 ár), 76,3% karlar og 21,1% voru með sykursýki. Meðalheildarskor á viðhaldi, stjórnun og trú á eigin getu til sjálfsumönnunar var 51,9-60,9 stig. Konur mátu sjálfsumönnun sína betri en karlar í þættinum viðhald (p<0,05), veik fylgni (r=-0,260;p=0,001) var á milli aldurs og trúar á eigin getu; viðhalds og trúar á eigin getu (r=0,274;p<0,01) og einnig á milli stjórnunar og trúar á eigin getu til sjálfsumönnunar (r=0,348;p<0,01). Meirihluti þátttakenda (67%) voru með ≥9 stig á FINDRISK og teljast í aukinni hættu á að fá SS2 innan 10 ára. Veik fylgni (r=-0,218;p<0,05) var milli trúar á eigin getu til sjálfsumönnunar og hættu á SS2. \nÁlyktanir: Einstaklingar með kransæðasjúkdóm eru í aukinni hættu á að fá SS2. Efla þarf sjálfsumönnun þeirra og trú á eigin getu til sjálfsumönnunar. Fræðsla og stuðningur geta verið mikilvægir þættir í því að bæta sjálfsumönnun og draga úr hættu á SS2. \nLykilorð: Kransæðasjúkdómur, sjálfsumönnun, sykursýki af tegund 2, áhættuþættir, lífsstíll, trú á eigin getu
Source: Skemman
Author: Kristín Guðný Sæmundsdóttir 1967
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Cardiology and Cardiovascular Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015350574
