Work

Taugungamyndun í fullorðnum spendýrum: Fræðilegt yfirlit

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð beinir sjónum sínum að hinu heillandi ferli taugungamyndunar fullorðinna spendýra, þ.e. þegar nýir taugungar myndast í heila fullorðinna lífvera. Markmiðið með þessari heildrænu greiningu er að varpa ljósi á margþætta eiginleika taugungamyndunar, m.a. hlutverk hennar í þroska og virkni taugakerfisins, þróunarfræðilegt gildi hennar, og tengsl hennar við erfðir, kynhormón, sálfræðilega þætti og lífsstíls- og umhverfisþætti. Enn fremur er skert taugungamyndun sett í samhengi við taugahrörnunarsjúkdóma og geðraskanir, þar sem kannað verður hvaða áhrif slíkar rannsóknir gætu komið til með að hafa á meðferðarúrræði í framtíðinni, t.a.m. hvað varðar taugastofnfrumumeðferðir. Með því að kafa djúpt í þessi ferli verður ljósi varpað á aðlögunarhæfni taugakerfisins og hæfileika þess til að endurnýja sig og um leið auka skilning okkar á taugamótunarleika, auk þess að \ndraga fram nýleg sjónarmið um heilbrigði heilans og meðferð gegn tauga- og geðröskunum.
Source: Skemman
Authors: Jón Tryggvi Sigurþórsson, Björgúlfur Kristófer Sigurðsson
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015424726
Cites: 96
Cited by:
Related to: 10