Sérkennslustefnur í íslenskum leikskólum : með hvaða hætti er sérkennsla og stuðningur við börn skipulögð í leikskólum?
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Fjölgun hefur verið á börnum sem þurfa á stuðning að halda í leikskólum á Íslandi undanfarin ár en ekki hafa verið gerðar margar rannsóknir um sérkennslu í íslenskum leikskólum. Þar sem ekki er mikið um rannsóknir var ákveðið að notast við eigindleg viðtöl til þess að öðlast dýpri skilning á málefninu. Sérkennslustýrur í fjórum mismunandi leikskólum voru viðmælendur í rannsókninni og voru það tvær úr Hjallastefnunni og tvær úr almennum leikskólum. Skoðaðar voru rannsóknir um tví- og fjöltyngd börn í leikskólum og samkvæmt niðurstöðum þeirra er tví- og fjöltyngi barna ein helsta ástæða fyrir því að stuðningsþarfir barna hafa færst í aukana. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að ekki sé mikill munur á sérkennslu innan Hjallastefnunnar og í almennum leikskóla, þrátt fyrir ólíkar áherslur í starfi. Leikskólarnir nota allir snemmtæka íhlutun í starfi sínu, þ.e.a.s. að þegar áhyggjur vakna um að barn eigi í vanda með eitthvað ákveðið er tekið strax á málinu, rætt við foreldra og sérkennslustýru/stjóra. Skjátími barna virðist vera að hafa áhrif á málþroska þeirra sem allar sérkennslustýrurnar höfðu orð á, einnig að stór hluti af hegðunarvanda barna kæmi út frá skjátíma og tölvuleikjum. Samtöl foreldra og barna á milli virðast að sama máli vera áhyggjuefni einnar sérkennslustýrunnar þar sem málþroski hefur farið niður á við hjá mörgum börnum og telur hún það vera vegna skjánotkunnar og samskiptaleysi við foreldra.
Source: Skemman
Author: Máney Dís Díönudóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015532873
