Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Í lokaritgerð þessari verður leitast við að varpa ljósi á systkinaofbeldi sem er ein tegund af fjölskylduofbeldi, birtingarmyndir þess og afleiðingar, hlutverk foreldra og fjölskylduþætti sem geta leitt til systkinaofbeldis. Niðurstöður leiða í ljós að mikil þörf er á að beina athygli að systkinaofbeldi því afleiðingar eru fjölmargar og alvarlegar. Afleiðingar af systkinaofbeldi eru bæði sálrænar og líkamlegar. Þær geta verið einstaklega skaðlegar fyrir líf og heilsu barna og fullorðinna einstaklinga ásamt því að hafa áhrif á lífsýn og framtíðarmöguleika einstaklinga sem hafa upplifað systkinaofbeldi. Mikilvægt er því að skilgreina hvað felst í systkinaofbeldi, innleiða það í greiningarviðmið eins og skilgreiningar- og flokkunarkerfi barnaverndar, þróa inngrip og stuðningsúrræði sem henta aldri og þroska barna og veita fjölskyldum sem heild aðstoð við að rjúfa skaðleg og sjúk samskipti innan þeirra. Einnig er mikilvægt fyrir börn og fullorðna einstaklinga að fá viðurkenningu á og að segja frá upplifun og reynslu sinni af systkinaofbeldi til að geta fengið frið í sálinni og náð bata. Félagsráðgjafar og annað heilbrigðisstarfsfólk þarf að hafa verkfæri til að koma auga á og greina systkinaofbeldi í starfi sínu með börnum og fjölskyldum þeirra.
Source: Skemman
Author: Þórdís Bjarnleifsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015654602
