#thinspiration: Samspil fjölmiðla og líkamsmyndar kvenna
Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Markmið ritgerðarinnar er að skoða líkama kvenna í heiminum í dag og velta upp ýmsum spurningum um þá útlitsdýrkun sem ríkir í hinum vestræna heimi. Sjónum verður einkum beint að fjölmiðlum og áhrifum þeirra á líkamsmynd kvenna. Geta þeir verið áhrifavaldar í upptöku og viðhaldi í auknum tilfellum átröskunarsjúkdóma hjá konum? Hugmyndir femínískra mannfræðinga um líkamann verða skoðaðar og þær bornar saman við þann líkama sem birtist okkur í fjölmiðlum. Fjölmiðlun hefur breyst hratt á undanförnum árum og margir nýir miðlar bæst við þá sem fyrir voru. Í ritgerðinni verða áhrif þeirra skoðuð og rýnt í áhrifamátt auglýsinga sem taka á sig margvíslegar birtingarmyndir. Að lokum verður bent á mikilvægi fjölmiðlalæsis (e. media literacy) og hvað notendur fjölmiðla geta gert til þess að skilja betur hvað liggur að baki skilaboðanna hverju sinni.
Source: Skemman
Author: Kristjana Arnarsdóttir 1990
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Gender, Feminism, and Media
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015714098
