Tengsl þjálfunarálags og blóðpróteina sem endurspegla streitu, bólgu og ónæmisviðbrögð meðal hlaupara
Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Hætta er á þróun alvarlegrar ofþjálfunar við aukið þjálfunarálag án viðeigandi endurheimtar. Meðal helstu áhættuþátta eru ónæg hvíld og ófullnægjandi orkuinntaka. Einkenni alvarlegrar ofþjálfunar og viðvarandi streitu eru að mörgu leyti svipuð, en viðvarandi streita getur haft í för með sér neikvæð áhrif á ónæmiskerfið og heilsu fólks almennt. Markmið: Markmið rannsóknarinnar var að kanna tengsl ákveðinna blóðpróteina sem endurspegla streitu, bólgu og ónæmisviðbrögð við Margþátta Þjálfunarálagskvarðann (MÞÁK), þjálfunarmagn og ákefð. Aðferðir: Þátttakendur rannsóknarinnar voru 20 hlauparar. Þeim var gert að svara spurningalista MÞÁK, auk almennra spurninga vikulega yfir fjögurra mánaða tímabil. Magn blóðpróteina sem hafa tengsl við streituhormón auk próteina sem hafa tengsl við bólguviðbrögð og ónæmiskerfið voru mæld með próteinmengjamælingum úr blóðsýnum þátttakenda sem tekin voru á fjögurra vikna fresti eða alls fimm sinnum yfir rannsóknartímabilið. Við tölfræðiúrvinnslu var notast við samdreifnigreiningu fyrir blönduð líkön þegar tengsl milli niðurstaðna spurningalista og blóðpróteina voru reiknuð. \nNiðurstöður: Niðurstöður sýndu tengsl ákveðinna próteina við nokkra undirþætti MÞÁK þótt þau hafi ekki verið mörg tölfræðilega marktæk. Þátttakendur skoruðu almennt lágt á MÞÁK og báru ekki merki um alvarlega ofþjálfun. Niðurstöður sýndu ekki mikinn mun á tengslum blóðpróteina við MÞÁK þegar niðurstöður allra þátttakenda, þátttakenda með engin veikindi skráð og þátttakenda sem ekki voru með veirusýkingu voru bornar saman. Depurð undirþáttur MÞÁK hafði marktæk jákvæð tengsl við clusterin (CLU). Marktæk neikvæð tengsl voru á milli 72-kDa type IV collagenase (CLG4A) og þreytu. Eins voru marktæk neikvæð tengsl milli alpha 1 acid glycoprótein 1 (AGP 1) og líkamlegra einkenna. Þrjú prótein voru með marktæk jákvæð tengsl við æfingamagn, þ.e. cathelicidin antimicrobial peptide (CAMP), prothrombin (F2) og complement C5 (C5). Tengsl CAMP og F2 voru óháð því hvort þeir sem voru með veikindi eða veirusýkingar eingöngu voru hafðir með eða ekki en fyrir C5 voru tengslin einungis marktæk þegar þeir sem voru með veikindi og veirusýkingar voru útilokuð. \nÁlyktun: Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að tengsl séu á milli skora á MÞÁK, þjálfunarálags og blóðpróteina sem endurspegla streitu, bólgu og ónæmisviðbrögð. Próteinmengjamælingar samhliða heildrænum fjölþátta spurningalista eins og MÞÁK geta verið gagnleg aðferð til að fylgjast með þjálfunarástandi einstaklinga en þó er þörf á frekari rannsóknum á efninu.
Source: Skemman
Author: Hildur Una Gísladóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015761441
