Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Lundarfar byggir á erfðafræðilegum grundvelli þótt umhverfi sé talið hafa áhrif því lundarfarið þróast að einhverju leyti með tímanum. Nokkuð er til af erlendum rannsóknum sem skoða lundarfar barna og áhugavert er að sjá hvort svipaðar niðurstöður fáist á Íslandi. \nTilgangur: er að skoða þætti sem talin eru hafa áhrif á lundarfar ungra barna ásamt því að skoða hvort munur sé á svörum foreldra eftir aldri og kyni, til þess að geta nýtt þá þekkingu í forvörnum og í meðferð. \nAðferð: Stuðst var við gögn úr langtímarannsókn Guðrúnar Kristjánsdóttur og Margrétar Eyþórsdóttur þar sem nýorðnum foreldrum var fylgt eftir í fjögur ár. Þátttakendur voru 129 foreldrar og svarhlutfallið 58,6%. Til að meta lundarfar á fjórða aldursári barns var notast við spurningalista McDevitt og Carey, BSQ. Aðrar breytur voru: kyn foreldris, deild, tegund fæðingar, menntun foreldris, aldur foreldra, meðgöngulengd, þunglyndi og kvíði mæðra. \nNiðurstöður: Ekki reyndist marktækur munur þegar skoðuð voru tengsl fyrirbura við lundarfar og fæðingartegundar við lundarfar. Mæður barna á Hreiðri segja börnin vera marktækt hlédrægari en mæður barna á Vökudeild. Mæður upplifa marktækt meiri þunglyndis- og kvíðaeinkenni einni viku eftir en sex vikum eftir fæðingu. Fylgni er á milli þunglyndis mæðra sex vikum eftir fæðingu og lundarfars barna á fjórða ári. Eldri mæður og feður meta börn sín marktækt með auðveldara lundarfar en yngri foreldrar. \nÁlyktanir: Út frá niðurstöðunum má álykta að lundarfar sé að mestu arfgengt þar sem umhverfisáhrif, eins og tegund fæðingar og að barn fæðist fyrirburi og hafi þurft að liggja á vökudeild, hafa ekki greinanleg áhrif. Andlegt heilsufar mæðra og aldur foreldra hafa þó áhrif á hvernig þau meta lundarfar barna sinna við 3-4 ára aldur. Lundarfar barnanna var einungis metið einu sinni og því sást ekki breyting á því yfir tíma og því ekki unnt að svara hvort þessir þættir breyti lundarfari barnsins með tímanum eða hvort þetta sé einungis skynjun foreldra, sem getur verið neikvæðari vegna þunglyndis eða ungs aldurs. \n \n \nLykilorð: lundarfar, tegund fæðingar, meðgöngulengd, heilsufar, BSQ Carey
Source: Skemman
Author: Lilja Sigurðardóttir 1988
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7015961966
