Úttekt á tíðni hjúkrunargreininga óráðs hjá öldruðum sjúklingum með mjaðmabrot á LSH 2012-2016
Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Óráð er alvarlegt sjúkdómsástand sem hendir allt að 50% aldraðra einstaklinga á sjúkrahúsum og hefur oft alvarlegar afleiðingar. Þrátt fyrir algengi óráðs er það vangreint vandamál og ekki nægilega skráð. Aldraðir einstaklingar og þeir sem hlotið hafa mjaðmabrot eru meðal þeirra sem eru í mestri hættu á að fá óráð. Talið er að hægt sé að fyrirbyggja óráð í um 30-40% tilvika. Með fullnægjandi skráningu og viðeigandi skimunar- og greiningartækjum er hægt að draga úr tíðni og framvindu þessa sjúkdómsástands. \nTilgangur/markmið: Leitast var við að varpa ljósi á hvort endurskoðun hjúkrunarferla í lok árs 2013 og innleiðing klínískra leiðbeininga vorið 2015 hafði áhrif á hjúkrunarskráningu óráðs. Jafnframt var athugað hversu hátt hlutfall einstaklinga 67 ára og eldri sem lögðust inn á bæklunarskurðdeildir vegna mjaðmabrots fengu hjúkrunargreiningar tengdar óráði á tilteknu fimm ára tímabili. \nAðferð: Framkvæmd var afturvirk lýsandi þversniðsrannsókn á rafrænum sjúkraskrám sjúklinga á tímabilinu 01.01.2012-31.12.2016. Í úrtaki voru alls 1116 (N=1116) einstaklingar 67 ára og eldri sem lögðust inn á sjúkrahús vegna mjaðmabrots. Eftirtaldar breytur voru athugaðar: kyn, aldur, hjúskaparstaða, afdrif og hjúkrunargreiningarnar: bráðarugl og hætta á bráðarugli og hversu oft þær komu fyrir í úrtakinu. \nNiðurstöður: Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að marktæk (p=0,001) aukning var í notkun á hjúkrunargreiningunni hætta á bráðarugli milli ára eftir innleiðingu klínískra leiðbeininga. Ekki var marktækur (p=0,826) munur í notkun á hjúkrunargreiningunni bráðarugl milli ára á skilgreindu tímabili rannsóknar. \nÁlyktun: Endurskoðun hjúkrunarferla í lok árs 2013 hafði lítil áhrif á hjúkrunarskráningu tengda óráði. Innleiðing klínískra leiðbeininga 2015 kom fram í aukinni notkun á hjúkrunargreiningunni hætta á bráðarugli og þar sem marktækur munur var þar á milli er hægt að álykta að innleiðingin hafi tekist á árangursríkan hátt með tilliti til hjúkrunarskráningar. Gefa niðurstöður rannsóknar því vísbendingar um jákvæð áhrif klínískra leiðbeininga á skimun við óráði. \nLykilorð: Óráð, bráðarugl, mjaðmabrot, hjúkrunarskráning, skimun, áhættuþættir, aldraðir, hjúkrunargreiningar.
Source: Skemman
Authors: Halldóra Anna Þorvaldsdóttir 1992, María Björk Ríkarðsdóttir 1992
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Health Information Management
Field: Health Professions
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016025943
