Work

Vettvangsathugun á lífslokum á íslensku hjúkrunarheimili

Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Aldraðir íbúar hjúkrunarheimila eru mjög farnir að heilsu og andlát eru tíð. Misbrestur virðist á að mjög hrumum íbúum hjúkrunarheimila sé boðin líknarmeðferð þar sem horft er heildrænt á sjúklinginn og aðstandendur hans þrátt fyrir að slík meðferð sé talin æskileg við lífslok. \n\tTilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hvernig staðið er að meðferð við lífslok aldraðra á íslensku hjúkrunarheimili og var eigindlegu rannsóknaraðferðinni vettvangsathugun beitt. Gagnasöfnun fór fram með viðtali við fjóra hópa hjúkrunarfræðinga heimilisins (11 einstaklinga), fjögurra mánaða athugun á vettvangi og skoðun opinberra gagna heimilisins. Túlkandi fyrirbærafræði var beitt við gagnagreiningu og niðurstöður settar fram í tveimur meginþemum sem hvort um sig hafði þrjú undirþemu. Í fyrra meginþemanu, Líknin sett í öndvegi, kom fram að sökum þess að íbúarnir voru farnir að heilsu töldu hjúkrunarfræðingarnir æskilegast að hafa hugmyndafræði líknarmeðferðar að leiðarljósi við umönnun íbúanna – allt frá komu þeirra á hjúkrunarheimilið þar til yfir lauk. Niðurstöður fyrra meginþemans benda jafnframt til að mikilvægt sé að efla umræðu fólks um líknarmeðferð aldraðra á íslenskum hjúkrunarheimilum. Í seinna meginþemanu, Hjúkrunarfræðingar eru burðarás lífslokameðferðar á hjúkrunarheimili, kom í ljós að kunnátta og færni hjúkrunarfræðinga heimilisins skiptu miklu máli við að greina yfirvofandi lífslok og vinna að viðhlítandi ráðstöfunum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að margt sé líkt með ásigkomulagi og líðan íbúa hjúkrunarheimila og sjúklinga líknardeilda og svipað sé komið fyrir þeim heilsufarslega. Þessar niðurstöður beina sjónum að því að mikilvægt sé að taka mið af þeirri fagþekkingu, mönnun og aðbúnaði, sem er við lýði á líknardeildum, við skipulagningu allrar þjónustu á hjúkrunarheimilum. \n\tMeginhugtök rannsóknarinnar: Aldraðir, hjúkrunarheimili, lífslokameðferð, líknarmeðferð, túlkandi fyrirbærafræði og vettvangsathugun
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7016040052
Cites: 51
Cited by: 1
Related to: 10